Maðurinn var lagður inn á sjúkrahús í mars á síðasta ári vegna öndunarörðugleika. Í ljós kom að hann var með lungnablæðingu og ekki leið á löngu þar til hann fékk hjartastopp.
„Það tók lækna sjö mínútur að koma hjartanu í gang á nýjan leik. Á meðan fékk ég heilablóðfall vegna súrefnisskorts til heilans. Ég vaknaði upp, í öndunarvél og var með skerta meðvitund í tvo daga, en komst síðan til fullrar meðvitundar og spurði: „Hvað gerðist?“ Það er erfitt að tengja innra tímaskynið við það sem var að gerast utan við líkamann en ég skil þetta að vissu leyti.“
Hann segir að það sem hann upplifði á þessum sjö mínútum, sem hann var dáinn, hafi dregið úr áhyggjum hans varðandi dauðann: „Ég er ekki hræddur við að deyja, ekki vitund. Hræddur við það sem gerist áður, það er ég, en náttúran gerir það að deyja auðvelt.“
„Ég sá þrjá sporöskjulaga sporbauga í röð, einn í einu, sem svifu bara um í tóminu. Sporbaugarnir voru allir uppréttir, eins og þeim væri stjórnað með streng (en það var ekki þannig) og þeir voru allir á þykkt við hring. Á innra og ytra yfirborði fyrsta sporbaugsins sá ég fjöll, ár, skóga og ský.“
Hann segir að þetta hafi verið fallegt í fyrstu en síðan hafi sporbaugurinn byrjað að dofna og fengið á sig gulleitt yfirbragð. Hann hafi síðan horfið og annar komið í staðinn sem hafi verið heitur járnhringur og hafi járn hægt og rólega losnað úr honum. Hann segist hafa fundið lyktina af járni en hafi síðar áttað sig á að blóð geti einnig valdið slíkri lykt og það þykir honum benda til að þarna hafi blandast saman lyktin í sjúkrastofunni og ofskynjanirnar.
„Ég skil þetta núna eins og þetta hafi verið þegar ég var í hjartastoppi. Skyndilega breyttist sviðsmyndin og við tók þriðji sporbaugurinn sem var þakinn fallegum skýjum sem voru ljósbleik og blá, eins og fallegasta sólsetur eða sólarupprás. Ég held að það hafi verið þarna sem hjartað mitt fór að slá á nýjan leik. Þegar ég komst til meðvitundar, voru þessir þrír sporbaugar skýrir í huga mér. Þegar mér var sagt frá hjartastoppinu og heilablóðfallinu, þá fór ég að skilja þetta,“ skrifar maðurinn á Reddit.