Á mánudaginn kom maðurinn, hinn 77 ára Ismael „El Maya“ Zambada, fyrir dómara í Bandaríkjunum. Hann stýrði hinum illræmda Sinaloa-eiturlyfjahring áratugum saman. Bandarískum yfirvöldum tókst að hafa hendur í hári hans á síðasta ári en hann hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu, þar til á mánudaginn.
Þegar hann kom fyrir alríkisdómara í Brooklyn í New York á mánudaginn játaði hann í fyrsta sinn aðild að fjölda afbrota.
Hann viðurkenndi að hafa síðan 1969 verið viðriðinn fíkniefnaviðskipti og að hafa flutt að minnsta kosti 1,5 milljónir kílóa af kókaíni til Bandaríkjanna.
Hann játaði einnig að undirmenn hans í Sinaloa hefðu drepið meðlimi annarra eiturlyfjahringa og saklaust fólk sem hafði engin tengsl við eiturlyfjahringi.
Bandarískir fjölmiðlar segja að „El Mayo“ muni eyða því sem hann á eftir ólifað í fangelsi.
Málið er mikill sigur fyrir bandarísk yfirvöld því „El Mayo“ er ekki bara einhver eiturlyfjabarón, hann var einn sá umsvifamesti og hættulegasti.
Hann stofnaði Sinaloa ásamt samstarfsmanni sínum Joaquín „El Chapo“ Guzmán á níunda áratugnum.
Margir hafa heyrt um hinn illræmda „El Chapo“ en færri um „El Mayo“ því hann hélt sig meira til hlés en var jafn valdamikill og „El Chapo“ og var aðalhugmyndafræðingurinn á bak við uppbyggingu Sinaloa sem er líklega stærsti glæpahringur heims í dag.
Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur lengi talið „El Mayo“ vera heilann á bak við hina miklu spillingu hjá mexíkóskum yfirvöldum, lögreglunni og hernum. Þessi spilling hefur gert Sinaloa kleift að vaxa og dafna samhliða því sem samtökin hafa smyglað kókaíni, heróíni og fantanýli til margra landa og þá sérstaklega til Bandaríkjanna.
Maðurinn sem ekki var hægt að handtaka
„El Mayo“ var árum saman á lista bandarískra yfirvalda yfir þá sem þau vildu allra helst handtaka. En það reyndist erfitt að hafa uppi á honum og handtaka, allt þar til hann var lokkaður upp í flugvél sem lenti á allt öðrum stað en hann reiknaði með.
„El Mayo“ er nánast hetja á götum úti í Mexíkó og auðvitað í fíkniefnaheiminum.
Þrátt fyrir að hafa verið í þessari valdastöðu áratugum saman, tókst honum lengi vel að komast hjá því að enda í fangelsi en félagi hans, „El Chapo“, var ekki svo heppinn.
En fyrir ári síðan kom að því að heppnin yfirgaf „El Mayo“. Honum var rænt af syni „El Chapo“, sem stýrði einum anga Sinaloa, sem varð til eftir að „El Chapo“ var handtekinn 2016. „El Chapo“ var dæmdur í ævilangt fangelsi í Bandaríkjunum 2019.
Sonurinn lokkaði „El Mayo“ með í flugferð undir því yfirskyni að þeir ætluðu að skoða uppbyggingu á einum af flugvöllum Sinaloa. En þess í stað var vélinni lent nærri landamærabænum El Paso í Texas í Bandaríkjunum þar sem bandarískir lögreglumenn biðu „El Mayo“.
Aðgerðin vakti mikla athygli, ekki síst vegna þess að bandarísk yfirvöld ákváðu að taka saman höndum við einn anga Sinaloa eftir margar misheppnaðar tilraunir, til að hafa hendur í hári „El Mayo“, í samstarfi við mexíkósk yfirvöld.
Hann hafði alltaf komist hjá handtöku og er talið að það geti hann þakkað tengslum sínum við spillta stjórnmála- og lögreglumenn sem vöruðu hann líklega við yfirvofandi handtöku.
Ástæðan fyrir játningunni
„Ég viðurkenni að ólögleg fíkniefni hafa valdið miklu tjóni meðal almennings í Bandaríkjunum, Mexíkó og annars staðar,“ sagði „El Mayo“ fyrir dómi á mánudaginn að sögn New York Times.
Ástæðan fyrir játningunni er líklega að hann vildi forðast dauðadóm.
Bandaríska dómsmálaráðuneytið tilkynnti nýlega að fallið yrði frá kröfu um dauðadóm yfir „El Mayo“ og skömmu síðar tilkynntu verjendur hans að hann myndi játa sök.