fbpx
Þriðjudagur 12.ágúst 2025
Pressan

Breskur göngumaður fær himinháan reikning eftir að honum var bjargað með þyrlu

Pressan
Þriðjudaginn 12. ágúst 2025 07:30

Dólómítarnir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það mun kosta sextugan breskan karlmann drjúgan skilding að hann hunsaði aðvörunarskilti og gekk eftir lokaðri gönguleið í ítölsku Dólómítunum.

CNN skýrir frá þessu og segir að maðurinn hafi gengið fram hjá fjórum aðvörunarskiltum og hafi að lokum endað í miðri skriðu. Grjót byrjaði að hrynja niður í kringum hann en honum tókst að komast í öruggt skjól en gat ekki komist þaðan aftur.

Hann gat hringt í neyðarlínuna og sagt að hann hefði gengið eftir hinni erfiðu gönguleið frá Passo Tre Croci til Berti via Ferrata. En hann gat ekki veitt nánari upplýsingar um staðsetningu sína.

Hann var beðinn um að halda kyrru fyrir og fjöldi fólks var sendur af stað til að leita að manninum. Í upphafi var lítið á leitinni að græða því þykk skýjahula lá yfir svæðinu en þegar þau hurfu kom í ljós að maðurinn var fastur í 2.400 metra hæð, á miðju skriðusvæði.

Þegar loksins tókst að bjarga manninum höfðu tvær björgunarþyrlur verið sendar á vettvang auk tuttugu sérhæfðra björgunarmanna.

Eins og áður sagði hunsaði maðurinn aðvörunarskilti og klifraði yfir lokanir. Göngufólk, sem hann hitti, hvatti hann til að fara ekki lengra en hann varð ekki við því.

Þetta ævintýri mannsins mun kosta hann sem svarar til um 2,2 milljóna íslenskra króna.

Upphæðin er svona há vegna þess að Bretar sögðu skilið við ESB 2020 og þurfa því að borga mun meira fyrir björgunaraðgerðir af þessu tagi en ríkisborgarar í ESB-ríkjunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Var klámfíkill – „Þegar ég stundaði kynlíf með kærustunni sá ég klámmyndir fyrir mér í höfðinu“

Var klámfíkill – „Þegar ég stundaði kynlíf með kærustunni sá ég klámmyndir fyrir mér í höfðinu“
Pressan
Í gær

Óskarsverðlaunaleikkonan fékk boð um stefnumót frá Trump daginn sem hún skildi við eiginmann sinn

Óskarsverðlaunaleikkonan fékk boð um stefnumót frá Trump daginn sem hún skildi við eiginmann sinn
Pressan
Í gær

Gerðu óhugnanlega uppgötvun undir húsinu – Konan vill klára húsið en karlinn er búinn að lofa hrekkjavökupartýi

Gerðu óhugnanlega uppgötvun undir húsinu – Konan vill klára húsið en karlinn er búinn að lofa hrekkjavökupartýi
Pressan
Í gær

Þú mátt (og átt) að borða steinana úr vatnsmelónum

Þú mátt (og átt) að borða steinana úr vatnsmelónum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessar matvörur hraða þyngdartapi og þessar vinna gegn því

Þessar matvörur hraða þyngdartapi og þessar vinna gegn því
Pressan
Fyrir 2 dögum

Konur eru hamingjusamari án karla og barna – „Ef þú ert kona, slepptu því að giftast“

Konur eru hamingjusamari án karla og barna – „Ef þú ert kona, slepptu því að giftast“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Birta myndband af hlaupadrottningu ganga í skrokk á kærasta sínum

Birta myndband af hlaupadrottningu ganga í skrokk á kærasta sínum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Heitasti ágústdagur sögunnar í Phoenix í gær

Heitasti ágústdagur sögunnar í Phoenix í gær