People skýrir frá þessu og segir að Betsey hafi nýlega verið dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi af dómstól í Flórída. Ástæðan var auðvitað fjölkvæni.
Honum tókst að vera kvæntur þremur konum samtímis með því að ganga ekki oftar en einu sinni í hjónaband í sömu sýslunni.
Í Bandaríkjunum er refsivert að vera kvæntur/gift fleiri en einum aðila.
Enginn veitti því athygli að Betsey væri kvæntur þremur konum og þær vissu ekki hver af annarri.
Fyrir rétti sagði Tonya, fyrsta eiginkonan: „Hann lét eins og hann væri hinn fullkomni maður, en í raun var hann það ekki.“
Það var hana sem fór fyrst allra að gruna að Betsey væri ekki allur þar sem hann væri séður. Það gerðist eftir að hún sá að hann var virkur á stefnumótasíðum.
Hún byrjaði þá að leita að nafni hans í opinberum gagnagrunnum og komst þá að því að hann væri kvæntur tveimur öðrum konum.
Hún setti sig í samband við þær og lögregluna.
Konurnar telja að Betsey hafi kvænst þeim til að komast yfir fjármuni.
Hann bað þær afsökunar þegar hann kom fyrir dóm.
Auk þess að vera dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi, var honum gert að halda sig frá samfélagsmiðlum og stefnumótasíðum í framtíðinni.