Margir hafa áhyggjur af að með þessu sé verið að réttlæta klámsíðuna OnlyFans, sérstaklega fyrir ungar konur sem hugsanlega er auðvelt að hafa áhrif á. The Guardian skýrir frá þessu.
Ari Kytsya er vinsæll áhrifavaldur með milljónir fylgjenda á TikTok og Instagram en hún birtir einnig klámefni, þar sem hún er í aðalhlutverki, á OnlyFans.
Í auglýsingum, sem snyrtivörumerki L‘Oréal, Urban Decay, hefur birt á samfélagsmiðlum, segir Kytsya að fólk setji „leiðinlegan“ andlitsfarða“ á sig. Í auglýsingunum er spilað inn á þá staðreynd að hluti af vinnu hennar er að gera klámmyndbönd.
„Var andlitsfarði ekki búin til, til að koma fram á sviði, fyrir myndavélar og á dýnum?“ spyr stjarnan, sem kallar sig oft „matress actress“ (dýnu leikkonu) sem vísar auðvitað til starfs hennar sem klámmyndaleikkonu.
Neðst í auglýsingunni stendur: „UD likes it raw“ sem er slangur fyrir að vilja stunda kynlíf án þess að nota smokk.
„Ég er ekki hrædd við að fara alla leið en það virðist sem heimurinn sé það,“ segir Kytsya.
Veitir góð ráð um klámiðnaðinn
Á TikTok veitur Kytsya oft góð ráð um hvernig er hægt að lifa af því að selja myndefni á OnlyFans og getur fylgjendum sínum góð ráð um hvernig þeir komast inn í klámiðnaðinn og hvernig þeir eiga að bera sig að í honum.
Hún ráðleggur til dæmis þeim fylgjendum sínum, sem hafa áhuga á að verða „matress actresses“ að fara oft í kynsjúkdómarannsóknir og hún ráðleggur þeim að byrja ekki í kláminu um leið og þeir verða átján ára.
En hún segir einnig að það séu miklir peningar í boði: „Það sem einkennir starfið mitt er að ef þú ferð í þetta af fullum krafti, þá getur þú þénað nóg til að byrja á einhverju öðru, kaupa hús, leigja út íbúðir eða fjárfesta.“