fbpx
Föstudagur 15.ágúst 2025
Pressan

Þetta lítt þekkta einkenni getur bent til þess að um elliglöp sé að ræða

Pressan
Laugardaginn 16. desember 2023 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einkenni elliglapa eru yfirleitt tengd við þætti á borð við minnistap, andlega getu og talerfiðleika en það eru önnur einkenni sem geta einnig verið snemmbúin viðvörun um að elliglöp hrjái fólk.

Skosku alzheimerssamtökin benda á að nú þegar jólin eru að ganga í garð komi fjölskyldur saman og þá geti ættingjar hugsanlega komið auga á að lítt þekkt einkenni elliglapa sé farið að hrjá ástvini.

Mirror segir að í ábendingu samtakanna komi fram að þetta einkenni sjáist hugsanlega þegar fólk gengur upp eða niður stiga.

„Fólk telur oft að minnistap og elliglöp séu það sama en það eru önnur lykileinkenni og merki sem er vert að taka eftir. Sérhver elliglapasjúklingur er einstakur. Það fer eftir því hvaða svæði heilans skemmast mest hvernig sjúkdómurinn leggst á þá,“ sagði talskona samtakanna.

Lítt þekkt einkenni elliglapa er líkamlegs eðlis en það hefur áhrif á hreyfingar sjúklinga. Þetta getur verið afleiðing af hnignandi getu til að geta áætlað fjarlægð því heilinn á í erfiðleikum með að vinna úr upplýsingum um hluti.

Þetta getur haft í för með sér að manneskja, sem glímir við elliglöp, getur átt erfitt með að ganga upp og niður stiga. Hún getur átt í erfiðleikum með að lyfta fótunum og geta átt frekar á hættu að renna, hrasa og detta. Talskona samtakanna sagði að ef fólk veiti því athygli að einhver eigi í erfiðleikum með að ganga upp eða niður stiga, sem og ef annarra einkenna elliglapa verður vart, sé rétt að ráðfæra sig við heimilislækni viðkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Morðin í jógúrtbúðinni – Hver myrti fjórar stúlkur fyrir þremur áratugum og af hverju hefur hann enn ekki fundist?

Morðin í jógúrtbúðinni – Hver myrti fjórar stúlkur fyrir þremur áratugum og af hverju hefur hann enn ekki fundist?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tíu ára stúlka pyntuð til dauða af föður og kærustu hans – Barnaverndarkerfið sagt hafa brugðist illa

Tíu ára stúlka pyntuð til dauða af föður og kærustu hans – Barnaverndarkerfið sagt hafa brugðist illa
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fjárhirðir fann lík í jökli – Hafði verið saknað í 28 ár

Fjárhirðir fann lík í jökli – Hafði verið saknað í 28 ár
Pressan
Fyrir 2 dögum

Suður-Evrópa brennur – Vísindamaður varar við „mólótovkokteil“

Suður-Evrópa brennur – Vísindamaður varar við „mólótovkokteil“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óhugnanlegt sjónarspil í morgunumferðinni – Myndband

Óhugnanlegt sjónarspil í morgunumferðinni – Myndband
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sakaði gest á Airbnb um eignatjón – Gestgjafinn notaði gervigreindarmyndir

Sakaði gest á Airbnb um eignatjón – Gestgjafinn notaði gervigreindarmyndir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllilegt mál – Lét svínin éta tvær konur

Hryllilegt mál – Lét svínin éta tvær konur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Velti fyrir sér hvers vegna hún hætti að sjá myndir af litla frænda sínum á samfélagsmiðlum – Óhugnanlegur sannleikurinn kom í ljós síðar

Velti fyrir sér hvers vegna hún hætti að sjá myndir af litla frænda sínum á samfélagsmiðlum – Óhugnanlegur sannleikurinn kom í ljós síðar