
Lucinda Miller, 24 ára gömul kona frá Ástralíu, hefur verið týnd síðan síðastliðinn sunnudag eða í 5 daga. Á sunnudaginn hafði Miller tekið leigubíl heim til sín en hún fór úr bílnum um tveimur og hálfum kílómetra frá heimili sínu í West Gippsland í Ástralíu.
Þegar tilkynnt var um hvarf Miller hóf lögreglan að leita á svæðinu milli heimilis hennar og þar sem hún fór úr bílnum. Á mánudaginn fékk lögreglan svo ábendingu um að mögulega hafi sést til Miller nokkrum kílómetrum sunnar en þar sem síðast sást til hennar. Nú hefur lögreglan því stækkað leitarsvæðið.
„Við erum að tala við fólk á svæðinu, skoðum allar ár, læki, vegi og stíga,“ segir rannsóknarlögreglumaðurinn Peter Fusinato í samtali við ABC. Þá hvetur Fusinato húseigendur á svæðinu til þess að athuga hvort Miller hafi farið inn í bygginar þeirra.
Lögreglan hefur yfirheyrt bílstjórann sem ók Miller heim á sunnudaginn en ekki er talið að hann sé viðriðinn málið. Alls eru nú um 30 lögreglumenn að leita að Miller og notast er við leitarhunda.
Fusinato bendir á að það gæti verið að Miller vilji ekki láta finna sig. „Hún gæti verið týnd á eigin forsendum,“ segir hann og bætir við því að hún gæti einnig verið særð. Í rauninni sé ekki almennilega vitað hvað hafi komið fyrir hana.