
Þegar Jaida Dodson, 22 ára gömul kona, opnaði dyrnar að húsinu sínu í Michigan-ríki, Bandaríkjunum, fyrir fólki sem var í kauphugleiðingum átti hún ekki von á því að opna húsið myndi enda með dómsmáli. Það varð þó raunin því í gær var Kevin VanLuven, 60 ára gamall karlmaður, fundinn sekur um alvarlegt blygðunarsemisbrot sem hann framdi í húsi Dodson.
VanLuven var ekki sjálfur að hugsa um að kaupa húsið, fólkið sem vildi kaupa húsið hafði fengið hann til að hjálpa sér við að skoða það. Dodson hleypti VanLuven ásamt mögulegu kaupendunum og fasteignasalanum inn í húsið sitt og fór í kjölfarið út með strákana sína, sem báðir eru ungir að aldri, svo þau gætu skoðað húsið án þess að hún og strákarnir væru fyrir.
Um tveimum tímum síðar, um það bil þegar skoðuninni átti að vera lokið, ákvað Dodson að kíkja í öryggismyndavélarnar sínar til að sjá hvort fólkið væri farið úr húsinu. Það var þá sem Dodson sá VanLuven inni í herbergi tveggja ára sonar síns. Hún sá VanLuven munda Elmo dúkku sem hann hafði tekið úr litlu tjaldi í herberginu. Því næst renndi hann niður buxnaklaufinni og notaði dúkkuna til að stunda sjálfsfróun.
Dodson hafði tafarlaust samtal við lögregluna sem mætti á svæðið. Lögreglan kom að VanLuven sem játaði að hafa sett getnaðarlim sinn í munn dúkkunnar. Samkvæmt lögregluskýrslunni baðst VanLuven síðan afsökunar og sagðist skammast sín.
Patrick Yens, einn lögreglumannanna sem mætti á vettvang, bar vitni í málinu fyrir dómi. Í vitnisburðinum sagði Yens frá símtali Dodson við neyðarlínuna og að lögreglan hafi tekið Elmo sem sönnunargagn.
Ekki er búið að ákveða hversu þungan dóm VanLuven fær fyrir brotið en hann á yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi og 2.000 dollara, sem nemur um 290 þúsund krónum, í sekt. Refsingin verður kveðin upp fyrir dómi 2. desember næstkomandi.