fbpx
Þriðjudagur 25.nóvember 2025

Reyndi að kasta sér fyrir lest eftir að hafa haldið fram hjá: „Þetta er að drepa mig – bókstaflega,“

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 14. nóvember 2019 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég stundaði frábært kynlíf með samstarfskonu minni. Þetta var gaman á þeim tíma, en síðan þá hefur konan mín hent mér út og það er að drepa mig – bókstaflega,“ segir maður í bréfi til Deidre, kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun.

„Ég fór á lestastöðina til að kasta mér fyrir lest. En ég sá dóttir vinar míns þarna og ég vildi ekki að hún yrði vitni að því.“

Maðurinn vinnur sem verkefnisstjóri fyrir stórt fyrirtæki.

„Ég er 42 ára og hafði verið hamingjusamlega giftur í 15 ár. Konan mín er 44 ára og við eigum saman son. En síðan kom nýr sýningarstjóri í vinnuna. Hún er 29 ára, yndisleg, skilin og á tíu ára stelpu.

Við þurfum öll að fara reglulega á öryggisnámskeið og við fórum á sama tíma. Námskeiðið var langt í burtu þannig við þurftum að gista á hóteli. Okkur kom vel saman, spjölluðum og borðuðum meira að segja saman eitt kvöldið. Við deildum vínflösku og þegar ég pantaði aðra sagði hún: „Jii, ég er ekki vön þessu. Mér líður eins og ég sé á stefnumóti.“

Við stauluðumst upp til að fara í herbergin okkar en lyftan fór fram hjá hennar hæð. Þegar lyftan stoppaði á minni hæð sagði hún: „Úps, ég er tveimur hæðum fyrir neðan.“ Ég sagði henni að það skipti ekki máli og bauð henni að koma í kaffi í mínu herbergi.

Þegar við komum inn í herbergið kyssti hún mig. Ég fann að ég var að svara henni í sömu mynt og þegar hún setti hönd sína undir bolinn minn þá trúði ég ekki að þetta væri að gerast.

Við stunduðum frábært kynlíf, sem tók fljótt enda vegna ástands okkar. Síðan fór hún í sitt herbergi og ég gat varla talað við hana næsta dag.

Þegar ég kom heim vissi eiginkona mín að það væri eitthvað að um leið og ég gekk inn um dyrnar. Ég sagði henni allt. Nú hefur hún hent mér út og það er að drepa mig að innan. Ég elska konuna mína og son minn svo mikið. Ég hef verið algjör fáviti.“

Deidre segir:

„Það er engin afsökun að halda fram hjá þegar þú hefur verið í svona hamingjusömu hjónabandi. En þú ert mennskur og við gerum öll mistök stundum, sérstaklega eftir að hafa drukkið mikið af áfengi. En eiginkonan þín veit af þessu, þannig það er ekkert hægt að segja annað en hversu leitt þér þykir þetta og að grátbiðja hana um fyrirgefningu. Þú augljóslega elskar hana, þannig notaðu þá orku til að laga sambandið og láttu henni líða eins og hún sé eina konan fyrir þig.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Íslendingur að störfum á svakalegum leik í Meistaradeildinni í kvöld

Íslendingur að störfum á svakalegum leik í Meistaradeildinni í kvöld
Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Orðið á götunni: Gagnrýni á falsfréttir Morgunblaðsins nú réttmæt – aðförin að eigendum Fréttablaðsins var það ekki

Orðið á götunni: Gagnrýni á falsfréttir Morgunblaðsins nú réttmæt – aðförin að eigendum Fréttablaðsins var það ekki
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Nauðguðu 18 ára ítalskri konu og létu kærastann hennar horfa á

Nauðguðu 18 ára ítalskri konu og létu kærastann hennar horfa á
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Jón ósáttur við gæludýralögin – „Þetta er gjaldið sem aðrir flokkar greiða fyrir að fá stuðning Ingu Sæland“

Jón ósáttur við gæludýralögin – „Þetta er gjaldið sem aðrir flokkar greiða fyrir að fá stuðning Ingu Sæland“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Lögmaður í haldi á Hólmsheiði vegna gruns um skipulagða glæpastarfsemi

Lögmaður í haldi á Hólmsheiði vegna gruns um skipulagða glæpastarfsemi
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Íbúi í miðbænum segir Reykjavíkurborg hafa sig fyrir rangri sök

Íbúi í miðbænum segir Reykjavíkurborg hafa sig fyrir rangri sök

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.