fbpx
Föstudagur 31.október 2025

Raunveruleikastjarna handtekinn fyrir að myrða YouTube stjörnu

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 12. maí 2020 08:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ein stjarna raunveruleika þáttanna Ink Master, Daniel Silva, hefur verið handtekinn fyrir morðið á vinsælli YouTube stjörnu, Corey La Barrie. The Metro greinir frá.

Ink Master eru bandarískir raunveruleikaþættir fjalla um húðflúrara sem keppa sín á milli í margvíslegum keppnum til að sýna hæfileika sína í húðflúrlistinni og aðra tengda listræna hæfileika. Danel var keppandi í 10 seríu þáttanna og nýtur mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum. Á Instagram hefur hann yfir milljón fylgjendur og er hann með yfir 230.000 YouTube áskrifendur.

Corey La Barrie var ástralskur YouTube-stjarna, fæddur 1995.  Hann var þekktur fyrir að deila grín myndböndum og YouTube rás sinni sem hefur yfir 300.000 fylgjendur. Á síðasta ári brá honum fyrir í raunveruleika þáttunum The Reality House.

Í fréttum erlendis var greint frá því aí gær að Corey hefði látið lífið í bílslysi í Los Angeles á sunnudaginn sem var jafnframt 25 ára afmælisdagurinn hans.

Nú hefur lögreglan í Los Angeles staðfest að Daniel Silva hafi verið handtekinn vegna andláts Corey, samkvæmt tilkynningu stendur til að kæra Daniel fyrir morð.  Daniel mun hafa verið undir stýri í bifreið þar sem Corey var farþegi. Bílstjóri bifreiðarinnar missti stjórn á bílnum og hafnaði á umferðarskilti. Bílstjórinn reyndi í kjölfarið að frýja af vettvangi en var stöðvaður af sjónarvottum.

Móðir Corey hefur staðfest andlátið. Móðir hans greindi frá því á samfélagsmiðlum. „Það hryggir mig óendanlega, á 25 ára afmæli sonar míns, að tilkynna að hann dó samstundis í slysinu. Engin orð fá lýst þeirri sorg sem fylgir því að missa barnið sitt. Þetta er óraunverulegt og harmurinn er yfirþyrmandi. Ég elska þig svo heitt Corey og ég mun sakna þín svo mikið. Þetta er svo ósanngjarnt“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Ein helsta stuðningskona Trump á þingi sökuð um að vera vinstrisinnuð

Ein helsta stuðningskona Trump á þingi sökuð um að vera vinstrisinnuð
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Hafnarfjarðarmálið: Meintur gerandi hringdi stöðugt í móðurina í aðdraganda húsbrotsins – Sláandi lýsingar á ofbeldi gegn drengnum

Hafnarfjarðarmálið: Meintur gerandi hringdi stöðugt í móðurina í aðdraganda húsbrotsins – Sláandi lýsingar á ofbeldi gegn drengnum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Búist við að Rodgers geti fengið starf á Englandi innan tíðar

Búist við að Rodgers geti fengið starf á Englandi innan tíðar
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Þingmaður segir að við séu búin að missa tökin – „Hvað vorum við að hugsa?“

Þingmaður segir að við séu búin að missa tökin – „Hvað vorum við að hugsa?“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Svona væri staðan ef föst leikatriði væru tekin úr jöfnunni – Arsenal og United væru í djúpum skít

Svona væri staðan ef föst leikatriði væru tekin úr jöfnunni – Arsenal og United væru í djúpum skít
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Hræðilegt ofbeldi fjölskylduföður gagnvart konu og börnum – Missti fóstur eftir spörk í kvið

Hræðilegt ofbeldi fjölskylduföður gagnvart konu og börnum – Missti fóstur eftir spörk í kvið

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.