fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025

Fór til Íslands eftir að lífið tók dramatíska stefnu – Fékk áfall þegar hún sá myndirnar

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 4. febrúar 2020 15:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Amanda Dingli frá Caernarfon í Wales segir að mynd frá ferðalagi hennar um Ísland hafi breytt lífi hennar. Síðan þá hefur hún misst tæplega 20 kíló og hjálpar öðrum að ná markmiðum sínum. Hún segir frá þessu í viðtali við North Wales Chronicle.

Amanda var um 78 kíló og er í dag 59 kíló.

„Líf mitt tók dramatíska stefnu þegar ég var nýkomin úr langtímasambandi og unglingssonur minn flutti erlendis. Skyndilega bjó ég ein og hafði ekkert til að einbeita mér að. Ég hafði engar afsakanir eins og ég þyrfti að sjá um son minn, eða elda kvöldmat, eða þrífa húsið,“ segir hún.

Í gegnum árin hafði Amanda reynt hinar ýmsu aðferðir til að grennast.

„Ég vildi létta mig en ég áttaði mig ekki á því hversu mikið ég væri búin að þyngjast fyrr en ég sá myndir frá ferðalagi mínu um Ísland. Enginn segir við þig: „Jesús þú ert búin að bæta svo mikið á þig!“ Og ég virkilega hélt að ég væri ekki svona stór fyrr en ég sá myndirnar,“ segir Amanda.

„Loksins hafði ég ástæðu til að gera eitthvað fyrir mig sjálfa og ekki til að gera einhvern annan hamingjusaman.“

Amanda byrjaði hjá Weight Watchers í febrúar 2017 og er þjálfari þar í dag. Hún segir að fyrstu mánuðirnir hafi ekki verið auðveldir en þetta sé allt þess virði.

Um mánuði eftir að hún tók mataræðið í gegn byrjaði hún að hreyfa sig.

„Að ná markmiði mínu, miðvikudaginn 6. desember 2017, var yfirþyrmandi upplifun. Ég grét af ánægju,“ segir hún.

Henni hefur tekist að halda aukakílóunum af sér og vill hjálpa öðrum að byrja sitt ferðalag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Svarar fyrir dónaleg skilaboð sem hún á að hafa sent á mann sem er í sambandi með samstarfskonu

Svarar fyrir dónaleg skilaboð sem hún á að hafa sent á mann sem er í sambandi með samstarfskonu
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Tuchel útskýrir óvænt val í enska landsliðshópinn – Fékk góð meðmæli

Tuchel útskýrir óvænt val í enska landsliðshópinn – Fékk góð meðmæli
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Valur fær styrktarþjálfara frá Fram – Hefur starfað fyrir stór félög

Valur fær styrktarþjálfara frá Fram – Hefur starfað fyrir stór félög
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Fjögurra barna móðir skotin til bana – fór á rangt heimili í vinnunni

Fjögurra barna móðir skotin til bana – fór á rangt heimili í vinnunni
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Ivan Toney vill aftur til Englands í janúar – Hans gamli stjóri opnar dyrnar

Ivan Toney vill aftur til Englands í janúar – Hans gamli stjóri opnar dyrnar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Hætta því að halda mínútu þögn vegna alþjóðlegra hörmunga

Hætta því að halda mínútu þögn vegna alþjóðlegra hörmunga

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.