fbpx
Mánudagur 08.september 2025
Eyjan

Brynjar er einsamall í hópferð erlendis – „Fullkomlega stjórnlaust“

Eyjan
Mánudaginn 8. september 2025 13:43

Brynjar Níelsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson, héraðsdómari, greinir frá því að hann hafi verið í Póllandi um helgina ásamt eiginkonu sinni og fleiri í hópferð.

„Soffíu tókst að draga mig til Póllands með lögfræðingum sem komnir eru af léttasta skeiði og rúmlega það. Þarna er góð blanda af dómurum, lögmönnum og flíspeysulögfræðingum.“

Segir Brynjar að í slíkum ferðum sjáist vel hvað kaupfíkn er algengur sjúkdómur og segir hann sjúkdóminn ágerast í ódýru landi þegar fólk telur sig gera góð kaup.

„Sést vel í svona ferðum hvað kaupfíkn er algengur sjúkdómur sem lítill gaumur gaumur er gefinn af stjórnvöldum og meðferðarúrræði því af skornum skammti. Fíknin ágerist þegar sjúklingarnir halda að þeir séu að gera góð kaup í ódýru landi. Held að það þurfi ekkert minna en þjóðarátak í glímunni við þessa fíkn sem nær að heltaka gott og alla jafna skynsamlegt fólk.“

Virðist sem Brynjar sé laus við þessa fíkn, meðan hann sækir einn menningarviðburði á öldurhúsum og þekkt kennileiti borgarinnar.

„Meðan fíklarnir vaða á milli verslana, fullkomlega stjórnlaust, sæki ég menningarviðburði á öldurhúsum bæjarins. Nú sit ég að vísu í rútu á leið í heimsókn í Wyborowa verksmiðjuna sem framleiðir samnefndan vodkadrykk. Er ég einn í þeirri ferð eins og þegar ég heimsótti þekktar útrýmingarbúðir í gær.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Framsókn í útrýmingarhættu – menn verða að gæta orða sinna

Svarthöfði skrifar: Framsókn í útrýmingarhættu – menn verða að gæta orða sinna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

María Mjöll afhenti Macron trúnaðarbréf sitt

María Mjöll afhenti Macron trúnaðarbréf sitt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir að skipun Ólafs boði nýja tíma í vinnubrögðum á Alþingi – „Þarna fannst mér sleginn allt annar tónn“

Segir að skipun Ólafs boði nýja tíma í vinnubrögðum á Alþingi – „Þarna fannst mér sleginn allt annar tónn“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Nýir mannauðsstjórar hjá Eimskip

Nýir mannauðsstjórar hjá Eimskip
Eyjan
Fyrir 1 viku

Arnar Þór afhjúpar af hverju svo margir hægri menn studdu Katrínu – „Þetta var bara svona vá fyrir mér“

Arnar Þór afhjúpar af hverju svo margir hægri menn studdu Katrínu – „Þetta var bara svona vá fyrir mér“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Umræðunni um málfrelsi komið upp á rétt plan

Orðið á götunni: Umræðunni um málfrelsi komið upp á rétt plan