fbpx
Miðvikudagur 27.ágúst 2025
Eyjan

Umhverfisstofnun með nýja heimasíðu um loftgæði

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 20. desember 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umhverfisstofnun hefur tekið í notkun nýja heimasíðu sem miðlar upplýsingum um loftgæði. Hlekkurinn á síðuna er loftgæði.is og má nota íslenska stafi í slóðina.

Nýja síðan er sögð mun notendavænni en sú eldri. Helsti munurinn sé að strax á upphafssíðunni fæst yfirlit um loftgæði á öllum mælistöðvum á landinu. Litakóði er notaður til að sýna ástand loftgæða á hverri mælistöð þannig að almenningur á auðveldara með að átta sig á stöðunni. Styrkur mengunarefna á hverri stöð ræður litnum á viðkomandi stöð á Íslandskortinu. Notendur geta svo með einföldum hætti skoðað nánar mæligildin fyrir viðkomandi stöð.

 

Gögnum um loftgæði á Íslandi er jafnframt miðlað á evrópska loftgæðavefinn  þar sem má sjá stöðu loftgæða á Íslandi í samanburði við önnur lönd í Evrópu.

Opnum þessarar nýju síðu er fyrsta skrefið í að miðla upplýsingum úr nýju loftgæðaupplýsingakerfi (Airviro) sem starfsfólk Umhverfisstofnunar hefur unnið að uppsetningu á síðusta árið.

Á næstu mánuðum munu bætast við fleiri valmöguleikar á síðuna og ber þá helst að nefna dreifilíkan loftmengunarefna á völdum svæðum á landinu. Dreifilíkanið reiknar út styrk loftmengunar hverju sinni út frá gagnagrunni um losun loftmengunarefna og veðuraðstæðum hverju sinni. Upplýsingar um styrk loftmengunarefna í mælistöðvum segja í raun aðeins til um stöðu loftgæða á þeim punkti þar sem mælistöðin er staðsett en með dreifilíkani verður hægt að sjá hvernig loftmengun dreifist undan vindi. Því verður hægt að sjá mismunandi styrk loftmengunar á öllu því svæði sem dreifilíkanið sýnir. Þannig verður til dæmis hægt að sjá gróflega hver styrkur loftmengunarefna er á öllu höfuðborgarsvæðinu.

Starfsfólk Umhverfisstofnunar vonast til að sem flestir geti nýtt sér þessa nýju heimasíðu til að fylgjast með loftgæðum í sínu nærumhverfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Upp með Njálu

Óttar Guðmundsson skrifar: Upp með Njálu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Lokuðu á okkur í fyrra en vilja núna vera með

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Lokuðu á okkur í fyrra en vilja núna vera með
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sjálfstæðisflokkurinn: Innistæðulausir frasar – ætti heldur að hlusta en tala

Sjálfstæðisflokkurinn: Innistæðulausir frasar – ætti heldur að hlusta en tala
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Hvers vegna voru tillögur um afturköllun umsóknar svæfðar í tíð Sigmundar Davíðs og Guðlaugs Þórs?

Þorsteinn Pálsson: Hvers vegna voru tillögur um afturköllun umsóknar svæfðar í tíð Sigmundar Davíðs og Guðlaugs Þórs?