fbpx
Laugardagur 17.maí 2025
Eyjan

Vilja hinir ekki vinna með Sigmundi?

Egill Helgason
Laugardaginn 1. október 2016 17:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég verð að viðurkenna að ég gef ekki mikið fyrir þá kenningu að enginn vilji vinna með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni eftir kosningar. Þegar illa gengur að mynda ríkisstjórn, segjum að það takist ekki í heilan mánuð, þá opnast ýmsir möguleikar sem menn hugleiddu ekki áður. Og þá þarf forsetinn að fara að þrýsta á flokksformenn um stjórnarmyndun.

Og þá geta menn líka farið að afsaka ríkisstjórnir með því að engir aðrir möguleikar hafi verið í stöðunni.

Það er reyndar frægt í stjórnmálasögunni að Ólafur Thors og Hermann Jónasson þoldu ekki hvor annan. Ein afleiðing þessa var að maður að nafni Steingrímur Steinþórsson varð forsætisráðherra í samstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks 1950 til 1953. Steingrímur var Framsóknarmaður – eins konar Sigurður Ingi síns tíma. Það kunni enginn illa við hann.

Það er sagt að Bjarna Benediktssyni líki alls ekki við Sigmund Davíð Gunnlaugsson og hugsanlega er það gagnkvæmt. Þeir unnu samt saman í stjórn í næstum þrjú ár og munu gera það aftur ef nauðsyn krefur. Persónulegt óþol mun ekki koma í veg fyrir það.

Þá er auðvitað spurningin með vinstri vænginn þar sem Sigmundur er í litlum metum. Eitt má rifja upp í því sambandi. Eftir talsvert þóf varð Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra í stjórn með Alþýðuflokknum og Alþýðubandalaginu 1978. Þá höfðu A-flokkarnir tveir unnið mikla kosningasigra en Framsókn tapað heilum átta prósentustigum.

Alþýðuflokkurinn var á þessum tíma undir áhrifum frá hugmyndum Vilmundar Gylfasonar – var líklega róttækasta stjórnmálaaflið. Í þingliði flokksins voru bæði Vilmundur og Sighvatur Björgvinsson en þeir höfðu átt í hatrömmum útistöðum við Ólaf út af Geirfinnsmálinu. Þeir urðu reyndar ekki ráðherrar, en voru á þingi fyrir flokkinn sem átti aðild að þessari stjórn – sem varð reyndar ekki langlíf.

Það er auðvitað ólíklegt að Sigmundur verði forsætisráðherra aftur þótt Ólafur hafi orðið það (Ólafur var reyndar fjarska óvinsæll meðal pólitískra andstæðinga á þessum árum). Líklegra er að Sigmundar bíði það hlutskipti að leiða Framsóknarflokkinn í stjórnarandstöðu og þá er spurning hvað hann verður herskár – það vantaði ekki að hann var herskár á tíma Jóhönnustjórnarinnar. En það getur orðið þreytandi fyrir þá sem hafa kynnst völdum að ala aldur sinn í stjórnarandstöðu.

En flokkurinn gæti líka komist í stjórn og Sigmundur fengið eitthvert ráðuneyti – í menntamálaráðuneytinu gæti hann til dæmis sinnt menningararfinum sem hann hefur svo mikinn áhuga á. Jónas frá Hriflu, sem Sigmundur dáir mjög, fór með menntamálin á tímanum þegar áhrif hans voru hvað mest.

 

d3203da660-380x230_o

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Er Bergþór Ólason orðinn helsti siðgæðisvörður Alþingis?

Orðið á götunni: Er Bergþór Ólason orðinn helsti siðgæðisvörður Alþingis?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Eins milljarðs gjaldþrot Frostfisks ehf. – Rúmar 440 milljónir fengust upp í kröfur

Eins milljarðs gjaldþrot Frostfisks ehf. – Rúmar 440 milljónir fengust upp í kröfur
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Aumkunarverð framganga stjórnarandstöðunnar – málþóf, tafaleikir og bjánataktar – samtök sægreifa með útsendara í þinghúsinu

Orðið á götunni: Aumkunarverð framganga stjórnarandstöðunnar – málþóf, tafaleikir og bjánataktar – samtök sægreifa með útsendara í þinghúsinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Stjórnarandstaða með pólitískt sjálfsofnæmi

Sigmundur Ernir skrifar: Stjórnarandstaða með pólitískt sjálfsofnæmi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Lögregla rúin trausti
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Steinunn Ólína skrifar: Að vanvirða líf þar til það þagnar

Steinunn Ólína skrifar: Að vanvirða líf þar til það þagnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þurfti að stilla til friðar eftir háðsglósur á Alþingi þar sem þingmaður móðgaðist og meirihlutinn flissaði – „Bíddu, hvar hefurðu verið?“

Þurfti að stilla til friðar eftir háðsglósur á Alþingi þar sem þingmaður móðgaðist og meirihlutinn flissaði – „Bíddu, hvar hefurðu verið?“