fbpx
Laugardagur 21.mars 2026

Instagram-stjörnurnar sýndu á sér brjóstin og fengu lífstíðarbann

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 28. október 2019 13:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrjár ungar konur, sem hafa gert sig gildandi á samfélagsmiðlinum Instagram, fá ekki að mæta aftur á leik í bandarísku Major League-deildinni í hafnabolta eftir að hafa brotið reglur á áhorfendapöllunum.

Julia Rose, sem er með 2,8 milljónir fylgjenda, Lauren Summer (1,4 milljónir fylgjenda) og Kayla Lauren (50 þúsund fylgjendur) voru á leik Houston Astros og Washington Nationals í fimmta leik liðanna í World Series í gær. Hafnabolti er feykilega vinsæl íþrótt í Bandaríkjunum og sátu milljónir áhorfenda límdar við skjáinn þegar sást til þeirra lyfta upp bolnum og bera brjóstin á áhorfendapöllunum.

Í frétt News.com.au kemur fram að David Thomas, varaforseti Major League-deildarinnar, hafi sent Juliu bréf þar sem fram kom að hún mætti ekki koma aftur á leiki deildarinnar. Ástæðan væri sú að hún hefði brotið gegn siðareglum með grófum hætti. Líklegt má telja að vinkonur Juliu, Lauren og Kayla hafi fengið samskonar bréf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Þarf að dúsa áfram í fangaklefa eftir að hafa buffað mann á golfvelli – „Þú hefðir átt að haga þér betur“

Þarf að dúsa áfram í fangaklefa eftir að hafa buffað mann á golfvelli – „Þú hefðir átt að haga þér betur“
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum
Chuck Norris er látinn
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Liverpool sendir frá sér yfirlýsingu vegna kynþáttaníðs í garð Konate

Liverpool sendir frá sér yfirlýsingu vegna kynþáttaníðs í garð Konate
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Bróðir mannsins sem lést í íshelli í Breiðamerkurjökli segir græðgi um að kenna – „Hægt hafi verið að koma í veg fyrir þetta“

Bróðir mannsins sem lést í íshelli í Breiðamerkurjökli segir græðgi um að kenna – „Hægt hafi verið að koma í veg fyrir þetta“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.