fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433Sport

Dregið í Evrópudeildinni – Íslendingar mætast

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 31. janúar 2025 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Búið er að draga í umspil um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.  Í pottinum voru liðin sem enduðu í 9.-24. sæti deildarkeppninnar. Fara sigurvegararnir svo til móts við efstu 8 liðin í deildarkeppninni í 16-liða úrslitum.

Ensku liðin Tottenham og Manchester United sluppu við þetta stig keppninnar og beint inn í 16-liða úrslit. En í umspilinu eru lið eins og Roma, Porto og Real Sociedad.

Það verður einmitt Íslendingaslagur þegar Midtjylland og Real Sociedad mætast. Orri Steinn Óskarsson spilar auðvitað með spænska liðinu og þá er Elías Rafn Ólafsson á mála hjá dönsku meisturunum, en hann hefur þó verið meiddur undanfarið.

Umspilið
Ferencvaros – Viktoria Plzen
Union SG – Ajax
Porto – Roma
PAOK – Steaua Búkarest
Twente – Bodo/Glimt
AZ Alkmaar – Galatasaray
Fenerbahce – Anderlecht
Midtjylland – Real Sociedad

Fyrri leikirnir eru spilaðir 13. febrúar og seinni leikirnir 20. febrúar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Amorim svarar fyrir sig – Gagnrýnir unga leikmenn félagsins

Amorim svarar fyrir sig – Gagnrýnir unga leikmenn félagsins
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Vilja safna fyrir launum Jesus og fá hann í janúar

Vilja safna fyrir launum Jesus og fá hann í janúar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Staðfest að Silva sé á förum – Horfir til HM næsta sumar

Staðfest að Silva sé á förum – Horfir til HM næsta sumar