fbpx
Sunnudagur 08.febrúar 2026
433Sport

Xavi gæti verið áfram en félagið þarf að uppfylla þessi tvö skilyrði hans

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 12. apríl 2024 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enn er möguleiki á því að Xavi verði áfram stjóri Barcelona á næstu leiktíð. Spænski miðillinn Mundo Deportivo segir frá þessu.

Xavi tilkynnti í vetur að hann myndi láta af störfum eftir tímabilið en æðstu menn hjá félaginu, þar á meðal forsetinn Joan Laporta, vilja ólmir halda honum.

Samkvæmt spænska miðlinum er Xavi þó með kröfur, eigi hann að vera áfram.

Í fyrsta lagi vill hann loforð um að ekkert stórt nafn fari frá félaginu í náinni framtíð. Seinni krafan tengist einnig leikmannamarkaðnum því Xavi vill fá stórt nafn í leikmannahóp sinn í sumar.

Menn eins og Joshua Kimmich, Bernardo Silva og Martin Zubimendi hafa allir verið nefndir til sögunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Telur leikmenn Arsenal ekki treysta Gyokeres

Telur leikmenn Arsenal ekki treysta Gyokeres
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Tómas Blöndal-Petersson semur við Val

Tómas Blöndal-Petersson semur við Val
433Sport
Í gær

Hrósar foreldrum Greenwood – Segist hafa heimsklassa leikmann í dag

Hrósar foreldrum Greenwood – Segist hafa heimsklassa leikmann í dag
433Sport
Í gær

Furðaði sig á vini sínum í beinni – „Helgi, ég er ekkert að reyna að skora nein stig“

Furðaði sig á vini sínum í beinni – „Helgi, ég er ekkert að reyna að skora nein stig“
433Sport
Í gær

Van Dijk kallar eftir því að þessir sérfræðingar axli ábyrgð og verndi unga leikmenn

Van Dijk kallar eftir því að þessir sérfræðingar axli ábyrgð og verndi unga leikmenn
433Sport
Í gær

Vilja framlengja við hinn aldraða framherja

Vilja framlengja við hinn aldraða framherja