fbpx
Miðvikudagur 09.júlí 2025
433Sport

Kerecis styrkir starfið á Ísafirði með myndarlegum hætti og kaupir nafnið á vellinum

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 22. febrúar 2024 09:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kerecis verður aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar Vestra samkvæmt samningi sem tilkynnt var um á Ísafirði í dag. Kvenna-, karla- og ungmennalið Vestra munu öll leika í búningum merktum Kerecis í sumar og heimavöllur félagsins hlýtur nafnið Kerecis-völlurinn.
Samúel Samúelsson, stjórnarmaður í knattspyrnudeild Vestra, fagnar samstarfinu og segir stuðninginn gríðarlega mikilvægan.

„2024 er tímamótaár hjá Vestra. Félagið mun leika í efstu deild karla í fyrsta sinn í ár og jafnframt tefla fram liði í meistaraflokki kvenna í fyrsta skipti síðan 2013. Þá er barna- og ungmennastarfið í miklum blóma og hér ríkir mikil eftirvænting fyrir sumrinu. Kostnaður vegna alls þessa er verulegur, sérstaklega vegna ferðalaga, og við erum afar þakklát fyrir veglegan stuðning Kerecis við félagið.“

Guðmundur Fertram stofnandi og forstjóri Kerecis segir að hjarta Kerecis slái á Ísafirði og það sé gaman að geta lagt knattspyrnudeild Vestra lið. Íþrótta- og æskulífsstarf sé einn af máttarstólpum samfélagsins og frábær árangur Vestra sé mikil lyftistöng fyrir Vestfirði. „Árangur Vestra er táknrænn fyrir uppganginn á Ísafirði og nágrenni undanfarin ár. Atvinnulífið blómstrar, íbúum fjölgar og mannlíf dafnar. Allt helst þetta í hendur og við viljum taka þátt í því að efla samfélagið í okkar heimabæ.”

Hann segir sérstaklega mikilvægt að styðja íþróttastarf á landsbyggðinni, enda sé hrópandi aðstöðumunur í samanburði við íþróttalið á SV-horninu. „Vestri þarf að ferðast um langan veg í alla útleiki með tilheyrandi kostnaði og óþægindum fyrir leikmenn, enda eru flugsamgöngur stopular og akleiðin löng. Hér þarf að stórbæta samgönguinnviði til hagsbóta fyrir mannlíf og atvinnulíf og ætlum við að leggja okkar af mörkum til að svo verði,“ segir Guðmundur Fertram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ekkert að gerast í máli Mbeumo en Brentford lætur vita af nýjum verðmiða

Ekkert að gerast í máli Mbeumo en Brentford lætur vita af nýjum verðmiða
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Þorsteinn öskuillur á blaðamannafundi – „Dónalegt og nautheimskulegt“

Þorsteinn öskuillur á blaðamannafundi – „Dónalegt og nautheimskulegt“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Missti stjórn á skapi sínu í gærkvöldi og varð alveg kolbrjálaður – Sjáðu myndbandið

Missti stjórn á skapi sínu í gærkvöldi og varð alveg kolbrjálaður – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Chelsea mætir Real eða PSG

Chelsea mætir Real eða PSG
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segir að Maignan hafi tekið ákvörðun sjálfur

Segir að Maignan hafi tekið ákvörðun sjálfur