fbpx
Þriðjudagur 20.maí 2025
433Sport

Blaðamaðurinn Brynjar veður í Vöndu – „Eru trúarlegar ástæður á bak við þetta? Eru líf þeirra minna virði?“

433
Þriðjudaginn 30. janúar 2024 07:00

Vanda Sigurgeirsdóttir. Mynd: Ernir Eyjólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Birgisson blaðamaður, skrifar aðsenda grein sem birtist á vefsvæði fótbolta.net í gær. Þar vandar hann Vöndu Sigurgeirsdóttur, formanni KSÍ, ekki kveðjurnar.

Ástæðan fyrir skrifum Brynjars er að í mars mun íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mæta Ísrael í umspili um laust sæti á Evrópumótinu síðasta sumar. Brynjar telur það skjóta skökku við að KSÍ neiti að spila gegn Rússlandi en spili með glöðu geði gegn Ísrael.

„Stjórn KSÍ hefur ákveðið að ekkert íslenskt knattspyrnulandslið muni leika við landslið frá Rússlandi meðan á hernaði Rússa stendur,“ sagði í yfirlýsingu KSÍ sem kom út í febrúar 2022. Óhætt er að segja að erfitt hafi verið að finna manneskju á landinu sem setti sig upp á móti til þessari ákvörðun. Í nóvember í fyrra kom í ljós að landslið Íslands myndi mæta Ísrael í umspili í undankeppni EM karla. Um leið og það varð ljóst hugsaði ég „Vá, þetta setur KSÍ í erfiða stöðu,“ og að ýmsu þyrfti að svara. Vegna starfs míns sem blaðamanns ákvað ég reyna fá svör frá ýmsum aðilum um málið. Ég hafði samband við Vöndu Sigurgeirsdóttur, formann KSÍ, og Klöru Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ, til að forvitnast hvort að stæði til að keppa við Ísrael í ljósi þeirra stríðsátaka (og mögulegs þjóðarmorðs) sem standa nú yfir á Gaza. Þegar þetta er skrifað er talið að 26 þúsund Palestínubúar hafi verið drepnir á undanförnum mánuðum. Einnig vildi ég vita, hvort ef leikurinn gegn Ísrael færi fram þýddi að Ísland myndi hér eftir leika við Rússland burt séð frá innrás þeirra í Úkraínu,“ skrifar Brynjar í pistli sínum.

Brynjar segir að þó Vanda sé að hætta sem formaður í febrúar hafi hún hingað til ekki hikað við að taka ákvarðanir sem skipta nokkru máli um framtíð KSí.

„Nú fyrir helgi birtist lítil frétt á vef RÚV þar sem Vanda segir að það hafi ekki einu sinni verið rætt innan veggja KSÍ að neita spila við Ísrael. Eftir því sem ég best veit eru þessi ummæli hennar þau einu sem hún eða þeir aðilar og samtök, sem ég hafði samband við, hafa látið falla um leikinn. Einhverjir telja það eflaust ekki vera í verkahring Vöndu og núverandi stjórnar að taka slíka ákvörðun enda verður kosið um nýja stjórn og formann í febrúar. Núverandi stjórn hefur þó ekki látið það stoppa sig í öðrum málum og framlengdi samning Åge Hareide, landsliðsþjálfara Íslands, en fyrri samningur hans átti að renna úr gildi rétt eftir að ný stjórn og formaður tekur við.“

„Ég nefnilega átta mig ekki á því hvernig það getur verið réttlætanlegt að keppa við Ísrael en ekki Rússland. Er það af því að Palestínubúar eru ekki hvítir? Eru trúarlegar ástæður á bak við þetta? Eru líf þeirra minna virði? Hver er ástæðan?.“

Hann segir Vöndu ekki hafa staðið við þau gildi sem hún segist standa fyrir og nefnir dæmi. „En þegar á hólminn var komið voru þau gildi, sem Vanda hefur sagst standa fyrir í yfir 30 ár, ekki til staðar. Stuttu eftir að KSÍ gaf út yfirlýsingu um að Ísland myndi ekki spila við Rússland ákvað stjórn knattspyrnusambandsins undir forystu Vöndu að halda til Sádi Arabíu og spila æfingaleik við landslið þeirra og borgaði Sádi Arabía allan kostnað. Þetta er land þar sem sjálfsögð réttindi kvenna og samkynhneigðra eru ekki til. Þar sem fólk er pyntað og aflífað án réttarhalda. Nú segir Vanda að það hafi ekki einu sinni verið rætt að hætta við knattspyrnuleik við þjóð sem hefur drepið 26 þúsund manns á nokkrum mánuðum. Í ferilskrá sem hún birtir á heimasíðu KSÍ er „baráttumanneskja“ fyrsta orðið sem Vanda notar til að lýsa sér. Það er erfitt að koma auga á þá manneskju.

Ég get ekki annað en hugsað um orð Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins, þegar ég hugsa um formennskutíð Vöndu: „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Óveðurský yfir Akranesi – Velta því fyrir sér hvort Jón Þór þurfi að óttast um starf sitt

Óveðurský yfir Akranesi – Velta því fyrir sér hvort Jón Þór þurfi að óttast um starf sitt
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Umboðsmaður Klopp slekkur í nýjustu kjaftasögunum

Umboðsmaður Klopp slekkur í nýjustu kjaftasögunum
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Tveir frægir menn gómaðir ölvaðir og örvaðir að spjalla við fyrirsætu – Öllu var lekið út

Tveir frægir menn gómaðir ölvaðir og örvaðir að spjalla við fyrirsætu – Öllu var lekið út
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Will Still að landa áhugaverðu starfi á Englandi

Will Still að landa áhugaverðu starfi á Englandi
433Sport
Í gær

Eftir ótrúlegt klúður sturlaðist hann þegar myndavélin beindist að honum – Sjáðu hvað gerðist

Eftir ótrúlegt klúður sturlaðist hann þegar myndavélin beindist að honum – Sjáðu hvað gerðist
433Sport
Í gær

Setja leik Íslands og Englands á dagskrá

Setja leik Íslands og Englands á dagskrá