Chelsea er búið að ganga frá samningum um að fá ungstirni frá Senegal.
Um er að ræða hinn 17 ára gamla Pape Daouda Diong sem kemur frá AF Darou Salam í heimalandinu, Senegal.
Diong spilar sem miðjumaður og þykir mikið efni.
Hann er U17 ára landsliðsmaður Senegal.
Diong mun þó ekki ganga í raðir Chelsea fyrr en í júní á næsta ári, þegar hann verður 18 ára gamall.
Chelsea hefur verið duglegt að fá inn unga leikmenn til félagsins frá því Todd Boehly eignaðist það í fyrra.
🚨🔵 Chelsea have completed deal to sign Senegal U17 midfielder Pape Daouda Diong, as revealed two weeks ago.
Born in 2006, Pape will turn 18 in the summer and he will become part of Chelsea project. 🇸🇳
Diong was at Stamford Bridge just two week ago. pic.twitter.com/81S4LQsE3T
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) December 28, 2023