fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
433Sport

Í París eru menn steinhissa á bréfi Mbappe

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 13. júní 2023 07:30

Kylian Mbappe t.v..

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjá Paris Saint-Germain eru menn steinhissa á því að Kylian Mbappe hafi formlega látið vita af því að hann ætlaði sér ekki að virkja klásúlu í samningi símum við félagið.

Mbappe skrifaði undir tveggja ára samning við PSG í fyrra með möguleika á árs framlengingu. Aðeins hann gat virkjað þann möguleika.

Kappinn hefur ákveðið að gera það ekki, en greint var frá þessu í gærkvöldi.

PSG er mjög hissa á formlegu bréfi sem Mbappe sendi félaginu í gærkvöldi þess efnis að hann hyggðist ekki virkja möguleikann á eins árs framlengingu. Sá möguleiki hefði nefnilega sjálfkrafa verið sleginn af borðinu 1. ágúst næstkomandi, nema samið væri um annað.

Mbappe var sterklega orðaður við Real Madrid í fyrra áður en hann framlengdi við PSG.

PSG vill ekki missa Mbappe frítt og er því útlit fyrir að tveir kostir séu í stöðunni: Að Mbappe skrifi undir nýjan samning eða verði seldur í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton
433Sport
Í gær

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur