fbpx
Fimmtudagur 14.ágúst 2025
433Sport

Spá fyrir Bestu deild karla: 10 sæti – „Hafa á­hyggjur af mark­varðar­stöðunni“

433
Þriðjudaginn 4. apríl 2023 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Besta deild karla fer af stað þann 10. apríl en þetta er í annað sinn sem deildin er með þessu fyrirkomulagi. Spilaðir verða 22 leikir og að þeim umferðum loknum er deildinni skipt upp í tvo hluta, eru þá spilaðir fimm leikir. 433.is mun á næstu dögum spá í spilin.

10.sæti – HK

HK er komið aftur upp í deild­ þeirra bestu og mun mikið mæða á hinum unga þjálfara, Ómari Inga Guð­munds­syni. Þessi spennandi þjálfari tók við þjálfun HK í upp­hafi síðasta tíma­bils þegar Brynjar Björn Gunnars­son sagði starfi sínu lausu.

Ómar stýrði HK upp í Bestu deildina og lét liðið spila skemmti­legan fót­bolta. HK er með sterkan kjarna sem hefur verið styrktur lítil­lega í vetur, liðið sár­vantar fram­herja sem tryggir 10–15 mörk og mögu­leiki er á að HK sæki slíkan mann áður en tíma­bilið byrjar.

HK hefur sótt tvo spennandi er­lenda leik­menn en miðju­maðurinn Marciano Aziz raðaði inn mörkum fyrir Aftur­eldingu í Lengju­deildinni í fyrra og varnar­maðurinn Ahmad Faqa kom á láni frá AIK í Sví­þjóð og er ætlað að binda varnar­leikinn saman.

Harðir HK-ingar hafa á­hyggjur af mark­varðar­stöðunni en Arnar Freyr Ólafs­son hefur varið mark liðsins undan­farin ár.

Spáin:
11 sæti – Fram
12 sæti – Fylkir

Lykilmaður: Leifur Andri Leifsson
Þjálfari: Ómar Ingi Guðmundsson
Heimavöllur: Kórinn
Íslandsmeistarar: Aldrei

Komnir
Marciano Aziz
Ahmad Faqa (á láni)
Atli Hrafn Andrason
Atli Þór Jónasson
Brynjar Snær Pálsson

Farnir
Stefán Ingi Sigurðarson
Ásgeir Marteinsson
Bjarni Gunnarsson
Bjarni Páll Linnet Runólfsson
Bruno Soares

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Grealish hringdi í Rooney fyrir skiptin – ,,Vona að hann sé ánægður“

Grealish hringdi í Rooney fyrir skiptin – ,,Vona að hann sé ánægður“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Hurzeler óttast ekki að missa Baleba

Hurzeler óttast ekki að missa Baleba
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Stjarnan selur leikmann til Svíþjóðar

Stjarnan selur leikmann til Svíþjóðar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Nokkur félög vilja Sancho og gamlir vinir skoða málið

Nokkur félög vilja Sancho og gamlir vinir skoða málið
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Stjarnan staðfestir komu tveggja landsliðsmanna frá Sierra Leone

Stjarnan staðfestir komu tveggja landsliðsmanna frá Sierra Leone
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Haaland fer fljúgandi inn í nýtt tímabil á nýjum alvöru trukk

Haaland fer fljúgandi inn í nýtt tímabil á nýjum alvöru trukk
433Sport
Í gær

Sjáðu trúlofunarhringinn sem er sagður kosta 615 milljónir

Sjáðu trúlofunarhringinn sem er sagður kosta 615 milljónir
433Sport
Í gær

Donnarumma kveður stuðningsmenn PSG

Donnarumma kveður stuðningsmenn PSG