

N´Golo Kante miðjumaður Chelsea er sagður nálgast samkomulag við Barcelona um að ganga frítt í raðir félagsins.
Kante er samkvæmt Sport á Spáni nálægt því að ganga í raðir Barcelona, hann getur skrifað undir við félagið í janúar.
Kante missti af HM vegna meiðsla en meiðsli hafa hrjáð hann undanfarin ár og hann misst mikið út.
Barcelona vill hins vegar krækja í franska miðjumanninn fyrir næsta tímabil en Chelsea hefur reynt að framlengja samning hans án árangurs.
Sergio Busquets fer fljótlega að hætta og því gæti Kante komið og fyllt í skarð hans sem djúpur miðjumaður.