fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
Pressan

Sleppa máltíðum og borða óhollari mat

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 20. október 2022 08:01

Þessi veltir verðlaginu vel fyrir sér. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúmlega 80% breskra neytenda hafa neyðst til að breyta innkaupavenjum sínum til að spara. 12% borða færri máltíðir vegna þess hversu dýr matur er orðinn.

Þetta segja bresku neytendasamtökin Which? og vísa í niðurstöður nýrrar rannsóknar.

Niðurstöðurnar sýna að milljónir Breta sleppa úr máltíðum og tæplega helmingur þjóðarinnar borðar minna af hollum mat en áður vegna þess hversu mikið matarverð hefur hækkað.

Af þeim sem sögðust eiga í miklum erfiðleikum með að láta enda ná saman, sögðust 50% sleppa úr máltíðum. Tæplega helmingur sagðist eiga erfiðara með að kaupa hollan mat vegna verðsins.

Mirror hefur eftir Sue Davies, hjá Which?, að stórmarkaðir gegni mikilvægu hlutverki á þessum erfiðu tímum við að styðja við bakið á viðskiptavinum sínum. Með því að tryggja aðgengi allra að ódýrum vörumerkjum sem séu einnig holl, með því að gefa neytendum tækifæri á að bera verð á vörum saman svo þeir geti séð hvað séu bestu kaupin og að tilboð beinist að fólki sem sé í mestri þörf fyrir aðstoð geti stórmarkaðirnir hjálpað viðskiptavinum sínum að komast í gegnum þá erfiðu mánuði sem eru fram undan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“
Pressan
Í gær

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því
Pressan
Fyrir 2 dögum

Brandy hvarf að heiman – „Undarleg tilfinning sækir á mig“

Brandy hvarf að heiman – „Undarleg tilfinning sækir á mig“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Maðurinn sem getur ekki hætt að stela eggjum villtra fugla fékk dóm

Maðurinn sem getur ekki hætt að stela eggjum villtra fugla fékk dóm
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nokkurra vikna stúlka á gjörgæslu með kíghósta – „Þetta hefur verið algjör martröð“

Nokkurra vikna stúlka á gjörgæslu með kíghósta – „Þetta hefur verið algjör martröð“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Umdeilt viðtal við hina raunverulegu Mörthu kallað það siðlausasta fyrr og síðar – Meintur eltihrellir fær að segja sína hlið

Umdeilt viðtal við hina raunverulegu Mörthu kallað það siðlausasta fyrr og síðar – Meintur eltihrellir fær að segja sína hlið