fbpx
Laugardagur 13.september 2025
433Sport

Svona gæti byrjunarlið Chelsea litið út á næstu leiktíð

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 14. júlí 2022 10:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chelsea er duglegt á félagaskiptamarkaðnum um þessar mundir.

Félagið gekk í gær á kaupum á Raheem Sterling frá Manchester City á 47,5 milljónir punda.

Þá er Chelsea við það að klófesta Kalidou Koulibaly, miðvörð Napoli, fyrir um 34 milljónir punda.

Chelsea missti miðverðina Andreas Christensen og Antonio Rudiger til Barcelona og Real Madrid fyrr í sumar og ætlar því ekki að láta staðar numið eftir að hafa krækt í Koulibaly. Félagið vill annan miðvörð.

Talið er að Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, hafi mikinn áhuga á Presnel Kimpembe hjá Paris Saint-Germain í þeim efnum.

Enska blaðið Mirror tók saman líklegt byrjunarlið á næstu leiktíð með ofangreinda leikmenn í huga. Það má sjá hér að neðan.

Chelsea hafnaði í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð eftir að hafa barist við toppinn fyrri hluta mótsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

KFR vann neðstu deild í gær í dramatískum leik

KFR vann neðstu deild í gær í dramatískum leik
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Óvænt nafn í hóp hjá City um helgina – Ekki spilað fyrir félagið í tæp tvö ár

Óvænt nafn í hóp hjá City um helgina – Ekki spilað fyrir félagið í tæp tvö ár