fbpx
Sunnudagur 09.nóvember 2025
433Sport

Fær 48 klukkustundir til að taka ákvörðun

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 27. júní 2022 11:30

Ousmane Dembélé í leik með Barcelona. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barcelona hefur gefið vængmanninum Ousmane Dembele 48 klukkustundir til að ákveða framtíð sína. Sport segir frá.

Samningur Dembele við Börsunga rennur út á miðnætti á fimmtudag. Félagið vill hins vegar fá að vita hver ákvörðun Frakkans verður sólarhring áður en það gerist.

Dembele hafði verið orðaður við Chelsea en síðustu daga hefur fréttaflutningur verið á þá vegu að hann muni skrifa undir nýjan samning á Nývangi.

Hinn 25 ára gamli Dembele lék 21 leik í La Liga á síðustu leiktíð. Hann skoraði aðeins eitt mark en lagði upp þrettán.

Dembele gekk í raðir Börsunga árið 2017 frá Dortmund. Hann kostaði félagið 140 milljónir evra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Mynd: Hátt settur maður í bobba – „Hvað viltu fá fyrir að sofa hjá?“

Mynd: Hátt settur maður í bobba – „Hvað viltu fá fyrir að sofa hjá?“
433Sport
Í gær

Darwin Nunez strax aftur til Englands?

Darwin Nunez strax aftur til Englands?
433Sport
Í gær

Mjög óvænt skref í lífinu: Dómari þegar fegursta kona í heimi verður kjörin – „Við elskum að sjá fallegar konur“

Mjög óvænt skref í lífinu: Dómari þegar fegursta kona í heimi verður kjörin – „Við elskum að sjá fallegar konur“
433Sport
Í gær

Carragher meinaður aðgangur að heimavelli City í vikunni – UEFA og City vilja ekki tjá sig

Carragher meinaður aðgangur að heimavelli City í vikunni – UEFA og City vilja ekki tjá sig