Real Madrid, Barcelona og Juvenstus hafa ekki gefið upp vonina um að stofna Ofurdeildina og setja hana af stað, þetta stóð til í apríl en var fljótt að falla um sjálft sig.
Stærstu lið Evrópu fyrir utan FC Bayern höfðu þá sameinast um að stofna Ofurdeild þar sem þeir ríku yrðu ríkari. Var þetta leið félaga til að losa sig út úr kreppunni sem fylgt hefur COVID.
Ensk félög og flest önnur voru fljót að hoppa frá borði þegar málið mætti gríðarlegri mótstöðu í heimi fótboltans.
En eftir sitja þrjú félög sem ætla ekki að gefast upp og eiga sér þann draum um að stærstu félög Evrópu komi aftur saman í Ofurdeildinni.
Félögin þrjú hafa ráðið til sín almannatengil til að sjá um málið og koma þessu í farveg, félögin vona að hægt sé að ná sátt um þessa umdeildu deild.
Florentino Perez forseti Real Madrid, Joan Laporta forseti Barcelona og Andrea Agnelli stjórnarformaður Juventus hafa rætt ítarlega saman síðustu daga samkvæmt fréttum og vilja láta reyna á málið.