fbpx
Fimmtudagur 25.desember 2025
433Sport

Joe Hart á leið til Skotlands? – Viðræður farnar af stað

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 28. júlí 2021 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tottenham og Celtic eiga nú í viðræðum um hugsanleg félagaskipti Joe Hart til síðarnefnda liðsins. Fabrizio Romano greinir frá.

Hart er 34 ára gamall markvörður. Hann hefur verið á mála hjá Tottenham síðan í fyrra en á þó enn eftir að spila leik fyrir félagið í ensku úrvalsdeildinni. Hart hefur hins vegar leikið tíu leiki í Evrópudeild og enska bikarnum.

Englendingurinn var nokkuð hátt skrifaður markvörður á sínum tíma. Þá lék hann fyrir Manchester City. Hann vann tvo Englandsmeistaratitla með félaginu.

Þá á Hart 75 landsleiki að baki fyrir Englands hönd.

Auk Tottenham og Man City hefur Hart leikið með Burnley, West Ham og Torino á undanförnum árum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Óvænt félag í umræðuna um Lewandowski

Óvænt félag í umræðuna um Lewandowski
433Sport
Í gær

Kristján ósáttur eftir uppákomu í Sky Lagoon – „Var búinn að borga 30 þúsund kall fyrir þetta“

Kristján ósáttur eftir uppákomu í Sky Lagoon – „Var búinn að borga 30 þúsund kall fyrir þetta“
433Sport
Í gær

Fór um áhorfendur eftir þessi subbulegu meiðsli í London í gær – Mynd

Fór um áhorfendur eftir þessi subbulegu meiðsli í London í gær – Mynd
433Sport
Í gær

Andlát vinsæls áhrifavalds til rannsóknar – Féll úr íbúð sinni

Andlát vinsæls áhrifavalds til rannsóknar – Féll úr íbúð sinni