fbpx
Þriðjudagur 08.júlí 2025
433Sport

Þórunni var boðið í afmælisteiti Neymar en nennti ekki að mæta – ,,Sé pínu eftir því“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 28. júní 2021 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórunn Helga Jónsdóttir fékk boð um að mæta í 18 ára afmæli brasilísku stórstjörnunnar Neymar er hún lék með Santos í Brasilíu fyrir rúmum áratug. Hún hafnaði hins vegar boðinu. Hún ræddi þetta í þættinum ,,Á Meistaravöllum“ á Hringbraut.

Hin 36 ára gamla Þórunn, sem er á mála hjá KR í dag, lék með kvennaliði Santos frá 2009 til 2010. Á sama tíma lék Neymar með unglingaliði félagsins karlamegin, ásamt því að vera að stíga sín fyrstu skref með aðalliðinu.

Á tíma sínum hjá Santos segir Þórunn að kvennaliðið hafi að miklu leyti deilt aðstöðu með unglingaliðinu. Þannig hafi hún umgengist Neymar regluega.

,,Hann var í unglingaliðinu og aðstaðan var svolítið þannig að við deildum aðstöðunni með unglingaliðinu. Hann hefur verið að stíga sín fyrstu skref með aðalliði Santos,“ sagði Þórunn.

Þetta varð til þess að Neymar bauð kvennaliðinu í afmælið sitt er hann varð 18 ára gamall.

,,Ég ákvað snemma þegar ég fór til Brasilíu að gera bara allt sem stelpurnar gerðu. Við fórum í kirkju einu sinni til tvisvar í viku og Neymar fór með okkur þangað og stákarnir í unglingaliðinu. Þannig hann bauð okkur stelpunum í liðinu bara í afmælið sitt. Ég held að það hafi verið 18 ára afmælið hans. Ég var þarna 25 ára stelpa og hann 18 ára polli. Ég man nú ekki hvað ég var að gera þetta kvöld. Ég sé pínu eftir því að hafa ekki kíkt aðeins,“ sagði Þórunn um boðið.

Smelltu hér til þess að horfa á viðtalið í heild. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Staðfesta kaup á íslenska landsliðsmanninum – Kristian gerir fjögurra ára samning

Staðfesta kaup á íslenska landsliðsmanninum – Kristian gerir fjögurra ára samning
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sandra um muninn: „Eitt af því sem einkennir okkur“

Sandra um muninn: „Eitt af því sem einkennir okkur“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Furða sig á nafnavenjum Íslendinga

Furða sig á nafnavenjum Íslendinga
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Szczesny gerir tveggja ára samning

Szczesny gerir tveggja ára samning
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Messi og ‘lífvörðurinn’ mögulega sameinaðir

Messi og ‘lífvörðurinn’ mögulega sameinaðir
433Sport
Í gær

Margrét Lára ræðir vonbrigðin í Sviss – „Ég er alltof gömul til að tjá mig um þetta“

Margrét Lára ræðir vonbrigðin í Sviss – „Ég er alltof gömul til að tjá mig um þetta“
433Sport
Í gær

Einbeiting United er á Mbeumo og ekkert annað eins og er

Einbeiting United er á Mbeumo og ekkert annað eins og er
433Sport
Í gær

Alexandra: „Þú getur rétt ímyndað þér hversu sárt þetta var“

Alexandra: „Þú getur rétt ímyndað þér hversu sárt þetta var“