fbpx
Laugardagur 27.desember 2025
433Sport

Segir að þessi leikmaður taki við af Messi og Ronaldo – ,,Það er annar guð á leiðinni“

Helgi Fannar Sigurðsson
Sunnudaginn 27. júní 2021 17:30

Samuel Eto'o í leik með Barcelona á sínum tíma. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samuel Eto’o segir að Kylian Mbappe verði ,,nýr guð“ fótboltans eftir að Lionel Messi og Cristiano Ronaldo leggja skóna á hilluna.

Messi og Ronaldo hafa verið á toppi heimsfótboltans í meira en áratug og fært knattspyrnuunnendum einstakar stundir með snilli sinni.

Nú er Messi hins vegar orðinn 34 ára og Ronaldo 36 ára. Þrátt fyrir að þeir virðist enn eiga nóg eftir þá mun óneitanlega koma að deginum þar sem þeir hverfa úr leiknum.

,,Cristiano er annar guð. Hann og Messi eru leikmenn sem setja markið hátt í nútíma knattspyrnu,“ sagði Eto’o. Kamerúninn lék með Messi hjá Barcelona. Hann lék einnig með Real Madrid, Inter, Chelsea og mun fleiri liðum á ferli sínum.

,,Það er þó annar guð á leiðinni sem verður klár þegar Messi og Cristiano verða orðnir þreyttir á að gleðja okkur inni á vellinum. Sá guð verður Kylian Mbappe,“ bætti Eto’o við.

Hinn 22 ára gamli Mbappe hefur átt frábæran feril hingað til þrátt fyrir ungan aldur. Hann varð heimsmeistari með franska landsliðinu árið 2018. Þá hefur hann raðað inn titlum í heimalandinu með Paris Saint-Germain og Monaco.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Bauð tæplega 80 milljónir í notaðan vasaklút – ,,Þá hvarf auglýsingin“

Bauð tæplega 80 milljónir í notaðan vasaklút – ,,Þá hvarf auglýsingin“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Mögulega fastur hjá sínu félagsliði út tímabilið

Mögulega fastur hjá sínu félagsliði út tímabilið
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Horfðu á Áramótabombu Íþróttavikunnar – Kristján Óli fer um víðan völl

Horfðu á Áramótabombu Íþróttavikunnar – Kristján Óli fer um víðan völl
433Sport
Í gær

Settu upphæðina sem Blikar greiddu Halldóri í annað samhengi – „Það er áhugavert að horfa til þess nú“

Settu upphæðina sem Blikar greiddu Halldóri í annað samhengi – „Það er áhugavert að horfa til þess nú“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Salah sá fyrsti í sögunni

Salah sá fyrsti í sögunni
433Sport
Fyrir 3 dögum

Amorim virðist áhyggjufullur: ,,Við munum lenda í vandræðum“

Amorim virðist áhyggjufullur: ,,Við munum lenda í vandræðum“
433Sport
Fyrir 3 dögum

Sjáðu myndbandið sem er á allra vörum – Blóðheitir og fengu hrokafullt svar frá stórstjörnunni

Sjáðu myndbandið sem er á allra vörum – Blóðheitir og fengu hrokafullt svar frá stórstjörnunni
433Sport
Fyrir 3 dögum

Glódís og Hákon valin best

Glódís og Hákon valin best
433Sport
Fyrir 3 dögum

Hætt við leikinn eftir allt saman

Hætt við leikinn eftir allt saman