Loris Karius á enga framtíð hjá Liverpool. Þetta segir Paul Gorst, blaðamaður á Liverpool Echo.
Karius kom til árið 2016 eftir að hafa staðið sig vel hjá Mainz í Þýskalandi. Hann vann sér inn sæti í byrjunarliði liðsins og lék til að mynda í úrslitaleik Meistaradeildarinnar vorið 2018. Þar gerði hann hins vegar tvö slæm mistök sem kostuðu Liverpool Evrópumeistaratitil. Hann hefur í raun aldrei náð sér til baka eftir þau.
Karius var í kjölfarið lánaður til Besiktas í tvö tímabil og svo til Union Berlin á síðustu leiktíð. Hjá hvorugu liðinu tókst hann að heilla. Hann á nú að snúa aftur til Liverpool en þar bíða hans líklega engar mínútur inni á vellinum.
,,Loris Karius á enga framtíð hjá Liverpool. Annar lánssamningur, nú hjá Union Berlin, gekk ekki upp. Það er áhugavert að greina frá því að Liverpool gæti þurft þriðja markvörð í sumar, ef Adrian fer. Það verður þó ekki Karius. Hans ferli á Anfield er lokið,“ sagði Gorst.
Samningur Karius við Liverpool rennur út eftir næstu leiktíð. Liðið mun reyna að finna annað hvort lið sem er tilbúið að kaupa hann eða taka hann á láni þar til samningur hans rennur út.