fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
433Sport

Væn pilla Geirs í gær vekur mikla athygli – „Þetta er galið“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 27. apríl 2021 13:00

Geir er framkvæmdarstjóri ÍA.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Geir Þorsteinsson fyrrum formaður KSÍ, nú framkvæmdarstjóri Skagamanna henti í áhugaverða pillu,“ segir Hjörvar Hafliðason í nýjasta hlaðvarpsþætti Dr. Football sem kom út í dag.

Geir Þorsteinsson benti á það á Twitter í gær að tæp 33 prósent af efstu deild karla yrðu spilað í maí, mótið spilast svo í júní, júlí, ágúst og september ef allt verður eðlilegt. Mótið hefst á föstudag þegar Valur og ÍA eigast við.

„Allir hlakka til – Íslandsmót að byrja! PepsiMax 2021 leikin maí-sept. 7 umferðir af 22 í maí. 7 leikir á 1 mánuði. Klárast mótið í maí eða þannig? Leikmenn íslenskra liða hljóta að vera í toppformi!,“ skrifar Geir nokkuð ósáttur er virðist á Twitter.

Þannig gæti eitthvað lið stungið af í toppbaráttu deildarinnar strax í maí á meðan eitthvað lið gæti horft á falldrauginn koma yfir sig.

Arnar Sveinn Geirsson forseti Leikmannasamtakanna segir þetta ekki boðlega framkomu við leikmenn. „Ég er alveg sammála honum, bæði fyrir mótið en bara út frá leikmönnum þá er þetta galið. Óþarfa álag, það er hægt að gera þetta öðruvísi. Það er enginn sem segir mér að það þurfi að vera sjö leikir í maí, það er ekki hægt að þjösnast á leikmönnum endalaust,“ sagði Arnar Sveinn.

Arnar Sveinn segir að það þurfi að pæla í leikmönnum. „Á einhverjum tímapunkti þarf að pæla í heilsu leikmanna, ef þeir eru ekki heilir þá spila þeir ekki leiki.“

Hjörvar segir að þessu veðri ekki breytt en efsta deild hefst á föstudag. „1/3 af mótinu klárast í maí, grasvellirnir ekki klárir og veðrið ekki eins og það verður best. Við breytum því ekki núna en þarft innlegg frá Geir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Anton Ingi tekur við starfi Óskars í Úlfarsárdal

Anton Ingi tekur við starfi Óskars í Úlfarsárdal
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Þetta er það dýrasta sem Cristiano Ronaldo hefur nokkurn tímann keypt sér

Þetta er það dýrasta sem Cristiano Ronaldo hefur nokkurn tímann keypt sér
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Óvænt endurkoma fyrrum leikmanns Liverpool

Óvænt endurkoma fyrrum leikmanns Liverpool
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tveir starfsmenn reknir fyrir þetta athæfi sitt í beinni útsendingu – Myndband

Tveir starfsmenn reknir fyrir þetta athæfi sitt í beinni útsendingu – Myndband
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Gengið í gegnum endurnýjun lífdaga og Manchester United íhugar nú að fá hann

Gengið í gegnum endurnýjun lífdaga og Manchester United íhugar nú að fá hann
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Ronaldo uppljóstrar um leyndarmál á bak við trúlofunina – „Þá komu börnin mín inn“

Ronaldo uppljóstrar um leyndarmál á bak við trúlofunina – „Þá komu börnin mín inn“
433Sport
Í gær

Varpar sprengju fyrir stórleikinn á Anfield í kvöld

Varpar sprengju fyrir stórleikinn á Anfield í kvöld
433Sport
Í gær

Ronaldo hrósar Arsenal í hástert – Var nálægt því að fara til félagsins

Ronaldo hrósar Arsenal í hástert – Var nálægt því að fara til félagsins