fbpx
Sunnudagur 28.desember 2025
433Sport

Átti ekki von á þessu eftir síðasta leikinn og felldi tár – Sjáðu hjartnæmt myndband

Jón Þór Stefánsson
Laugardaginn 27. mars 2021 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnukonan Rhali Dobson felldi tár eftir síðasta leik sinn í áströlsku úrvalsdeildinni, en kærasti hennar, Matt Stonham, bað hana um að giftast sér á hliðarlínunni að leikslokum.

Rhali Dobson, sem spilaði með Melbourne City ákvað að leggja skóna á hilluna snemma, eða einungis 28 ára gömul. Ástæðan er sú að hún vill hjálpa áðurnefndum unnusta sínum, Matt Stonham, sem er að berjast við krabbamein í heila.

Dagurinn verður lengi í minnum hafður hjá Rhali og Matt, en hún skoraði mark í 2-1 sigri á Perth Glory, og ekki nóg með það, heldur sagði hún einnig „já“ við bónorðinu. Stuttu eftir má sjá liðfélaga hennar umkringja parið og við tók risastórt hópknús. Þá má heyra einn lýsanda leiksins segja: „Við erum að verða vitni að einu fallegasta augnabliki í sögu deildarinnar.“

Nú hefur verið greint frá því að Rhali hafi tvisvar sinnum beðið Matt um að giftast sér seinustu vikur, en þá hafi hann hlegið að hugmyndinni. Í viðtali eftir leikinn og atvikið sagði hún: „Þetta hefur meiri þýðingu en íþróttir. Hann er heimurinn minn,“

„Ég hafði látið lítið fyrir þessu fara, vegna þess að ég vildi að liðið gæti haldið einbeitingu svo við gætum átt góðan endi á tímabilinu.“

„Þær vissu að Matt hefði farið í aðgerð og svoleiðis, og höfðu sýnt okkur mikinn stuðning.“

Myndir og myndband af atvikinu hafa farið eins og eldur um sina um samfélagsmiðla, enda er augnablikið gífurlega hjartnæmt. Sjá má myndbandið hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tvær goðsagnir neita að ræða málin um 20 árum seinna – ,,Hann gerði risastór mistök með þessum ummælum“

Tvær goðsagnir neita að ræða málin um 20 árum seinna – ,,Hann gerði risastór mistök með þessum ummælum“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

‘Framtíð United’ þarf að bíða eftir tækifærinu

‘Framtíð United’ þarf að bíða eftir tækifærinu
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Má ekki byrja að hugsa um stórlið eins og Real Madrid – ,,Ferillinn hefur staðið yfir í tvö ár“

Má ekki byrja að hugsa um stórlið eins og Real Madrid – ,,Ferillinn hefur staðið yfir í tvö ár“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fengi miklu meiri gagnrýni ef hann væri ekki í Liverpool

Fengi miklu meiri gagnrýni ef hann væri ekki í Liverpool
433Sport
Í gær

Hefur reynt allt til að hjálpa Jesus á erfiðum tímum

Hefur reynt allt til að hjálpa Jesus á erfiðum tímum
433Sport
Í gær

Harðlega gagnrýndur á tímabilinu en ætlar sér að verða sá besti í heimi

Harðlega gagnrýndur á tímabilinu en ætlar sér að verða sá besti í heimi
433Sport
Í gær

Kristján varpar fram kenningu um aðstoðarmanninn á Hlíðarenda – „Það er byrjað að brýna hnífana og það á bara eftir að dúndra þeim í bakið á Hermanni“

Kristján varpar fram kenningu um aðstoðarmanninn á Hlíðarenda – „Það er byrjað að brýna hnífana og það á bara eftir að dúndra þeim í bakið á Hermanni“
433Sport
Í gær

Loksins klár í að spila 90 mínútur

Loksins klár í að spila 90 mínútur
433Sport
Í gær

Segir að Glasner muni kveðja 2026

Segir að Glasner muni kveðja 2026