fbpx
Fimmtudagur 06.nóvember 2025
433Sport

Gerrard ósáttur með ákvörðun Southgate – „Ég er ekki sammála“

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 22. mars 2021 21:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steven Gerrard, knattspyrnustjóri Rangers og fyrrverandi leikmaður enska landsliðsins og Liverpool, er ósáttur með ákvörðun Gareth Southgate, landsliðsþjálfara Englands að velja ekki Trent Alexander-Arnold í landsliðið.

Gerrard telur að Southgate hefði átt að sýna Alexander -Arnold meiri stuðning en leikmaðurinn hefur gengið í gegnum erfiða tíma innan vallar upp á síðkastið. Gerrard telur hann vera „besta bakvörð Englands.“

„Southgate tekur þessa ákvörðun, ég er ekki sammála þeirri ákvörðun en ég er heldur ekki landsliðsþjálfari Englands. Ég tel að Alexander-Arnold sé besti bakvörður Englands,“ sagði Gerrard í viðtali hjá The Athletic.

Ástæða Southgate fyrir því að velja Alexander-Arnold ekki í næsta landsliðsverkefni var byggð á þeim rökum að Reece James og Kieran Trippier, væru að spila betur og að Alexander-Arnold væri því óheppinn með að hafa ekki verið valinn.

„Trent er heimsklassa hægri-bakvörður, hann er besti hægri-bakvörður landsins og við eigum aðra frábæra hægri-bakverði,“ sagði Steven Gerrard, knattspyrnustjóri Rangers.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Íslandsvinurinn kvartaði undan mat sem hann borðaði skömmu fyrir skyndilegt andlát – „Vorum í algjöru áfalli“

Íslandsvinurinn kvartaði undan mat sem hann borðaði skömmu fyrir skyndilegt andlát – „Vorum í algjöru áfalli“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Kom Van Dijk í opna skjöldu í viðtali – Myndband

Kom Van Dijk í opna skjöldu í viðtali – Myndband
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Linda Líf til Svíþjóðar

Linda Líf til Svíþjóðar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Meistaradeildin: City pakkaði Dortmund saman – Barcelona náði ekki að vinna í Belgíu

Meistaradeildin: City pakkaði Dortmund saman – Barcelona náði ekki að vinna í Belgíu
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Njarðvík staðfestir ráðningu á Davíði Smára

Njarðvík staðfestir ráðningu á Davíði Smára
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Ljótt ástand í Beckham fjölskyldunni

Ljótt ástand í Beckham fjölskyldunni
433Sport
Í gær

Kaldhæðinn Arnar Gunnlaugs: „Er hjá Stellar, sem hjálpar gríðarlega mikið til þegar þú ert að velja í landsliðið“

Kaldhæðinn Arnar Gunnlaugs: „Er hjá Stellar, sem hjálpar gríðarlega mikið til þegar þú ert að velja í landsliðið“
433Sport
Í gær

Þetta eru félögin sem bíða og sjá hvort Barcelona mistakist að landa Rashford – Tvö á Englandi

Þetta eru félögin sem bíða og sjá hvort Barcelona mistakist að landa Rashford – Tvö á Englandi