fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
433Sport

Klopp segist ætla að taka sér ársfrí þegar tími hans hjá Liverpool endar – „Ég tek mér ársfrí“

Aron Guðmundsson
Fimmtudaginn 18. mars 2021 20:18

Jurgen Klopp.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segist vera ákveðinn í því að taka sér ársfrí frá þjálfun þegar að hann yfirgefur Liverpool.

Klopp er með samning við Liverpool fram á mitt ár 2024 og segist hafa gert samkomulag við fjölskyldu sína að taka sér frí frá knattspyrnu þegar að stjóratíð hans hjá Liverpool tekur enda.

„Eitt er á hreinu, þegar að tíma mínum hjá Liverpool lýkur er öruggt að ég tek mér ársfrí. Enginn þarf að hringja í mig, ekki eftir fjóra mánuði og ekki eftir sex mánuði. Það skiptir ekki máli hver það er sem hringir og býður mér starf, ég tek mér ársfrí,“ sagði Klopp í viðtali við Bild.

Klopp hefur stýrt Liverpool til sigurs í Meistaradeild Evrópu og ensku úrvalsdeildinni. Hann er vel liðinn í Bítlaborginni og er meðal færustu knattspyrnustjóra í heimi.

Það er klárt mál að hann verður eftirsóttur er hann yfirgefur Liverpool.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Helgi og Egill að störfum í Sviss

Helgi og Egill að störfum í Sviss
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Kaldhæðinn Arnar Gunnlaugs: „Er hjá Stellar, sem hjálpar gríðarlega mikið til þegar þú ert að velja í landsliðið“

Kaldhæðinn Arnar Gunnlaugs: „Er hjá Stellar, sem hjálpar gríðarlega mikið til þegar þú ert að velja í landsliðið“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Lúðvík valdi hóp U21 árs landsliðsins – Stýrir liðinu tímabundið á meðan leitað er að arftaka Ólafs Inga

Lúðvík valdi hóp U21 árs landsliðsins – Stýrir liðinu tímabundið á meðan leitað er að arftaka Ólafs Inga
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Spilaði í Meistaradeildinni í gær en kemst ekki í U21 árs landslið Íslands

Spilaði í Meistaradeildinni í gær en kemst ekki í U21 árs landslið Íslands
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Albert mætti í Landsrétt í morgun

Albert mætti í Landsrétt í morgun
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Óhugnanleg uppákoma í London: Lögregla opinberar hver þekkti maðurinn er

Óhugnanleg uppákoma í London: Lögregla opinberar hver þekkti maðurinn er
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ronaldo ómyrkur í máli er hann ræddi málefni Manchester United – „Við verðum að vera hreinskilin“

Ronaldo ómyrkur í máli er hann ræddi málefni Manchester United – „Við verðum að vera hreinskilin“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ungstirnið á förum í janúar – Virðist búinn að velja áfangastað

Ungstirnið á förum í janúar – Virðist búinn að velja áfangastað