fbpx
Föstudagur 07.nóvember 2025
433Sport

Pirraður Zidane krafðist virðingar frá fjölmiðlum – „Ég á það ekki skilið að komið sé fram við mig svona“

Aron Guðmundsson
Laugardaginn 6. febrúar 2021 12:31

Zinedine Zidane

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri Real Madrid krefst þess að fjölmiðlar sýni honum virðingu og fullyrðir að Real Madrid geti enn orðið Spánarmeistari.

Gengi Real Madrid á tímabilinu hefur ekki verið nægilega gott. Liðið situr í 3. sæti spænsku deildarinnar með 40 stig, tíu stigum á eftir toppliði Atletico Madrid sem á einnig leik til góða á Real Madrid. Þá datt liðið einnig úr spænska bikarnum eftir niðurlægjandi tap gegn neðri deildar liðinu Alcoyano.

Zidane hefur þurft að þola mikla gagnrýni, bæði frá fjölmiðlum sem og stuðningsmönnum liðsins sem telja hann kominn á endastöð í Madrid. Zidane er goðsögn hjá Real eftir að hafa spilað við góðan orðstír þar og einnig gert frábæra hluti með liðið sem knattspyrnustjóri.

„Það sem fær mig til að hlægja eru spurningar ykkar um það af hverju ég er pirraður. Ég á það ekki skilið að komið sé fram við mig svona eins og fjölmiðlar hafa gert. Við unnum deildina á síðasta tímabili og ég vonast eftir smá virðingu,“ sagði pirraður Zinedine Zidane á blaðamannafundi.

Zidane telur að Real eigi enn þá góða möguleika á að vinna titil á tímabilinu.

„Við unnum okkur inn þann rétt að berjast um titilinn á þessu tímabili, gefið okkur að minnsta kosti tíma út leiktíðina. Það munu þurfa að eiga sér stað breytingar á næsta tímabili en á þessu tímabili leyfið okkur, liðinu sem vann deildina á síðasta tímabili að gera atlögu að titlinum,“ sagði Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri Real Madrid.

Real Madrid berst nú á tveimur vígstöðum, spænsku deildinni og Meistaradeild Evrópu þar sem liðið er komið í 16-liða úrslit keppninnar og mætir þar ítalska liðinu Atalanta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Ein goðsögn út en önnur inn hjá íslenska landsliðsmanninum

Ein goðsögn út en önnur inn hjá íslenska landsliðsmanninum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ekki greitt meðlag í fleiri mánuði og gæti endað bak við lás og slá

Ekki greitt meðlag í fleiri mánuði og gæti endað bak við lás og slá
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Nýjasta ofurparið á Englandi vekur athygli – Sögð taka við keflinu eftir að samband fór í vaskinn

Nýjasta ofurparið á Englandi vekur athygli – Sögð taka við keflinu eftir að samband fór í vaskinn
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Héldu minningarathöfn eftir að þjálfarinn lést í miðjum leik á mánudag

Héldu minningarathöfn eftir að þjálfarinn lést í miðjum leik á mánudag