Davíð Örn Atlason er orðinn leikmaður Breiðabliks, hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag. Breiðablik tilkynnti um komu bakvarðarins frá Víking R. í kvöld.
Eins og greint hafði verið frá fyrr í dag á 433.is, hafði Davíð ekki áhuga á að framlengja samning sinn við Víking. Sökum þess ákvað félagið selja hann frekar en að missa hann frítt eftir ár. Davíð Örn telur að nú hafi verið rétti tímapunkturinn að róa á önnur mið frá Víkingum.
„Ég er mjög ánægður með að vera kominn til Breiðabliks. Mér líst mjög vel á allar aðstæður og það hlutverk sem mér er ætlað. Ég er búinn að vera lengi í Víkinni og hef átt frábæra tíma þar en fannst vera kominn tími til að breyta til. Einnig er ég sérstaklega ánægður með hvernig félögin stóðu að þessum félagaskiptum. Víkingar eiga miklar þakkir skildar fyrir fagleg vinnubrögð,” sagði Davíð Örn í tilkynningu sem birtist á vefsíðunni blikar.is
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, er ánægður með að hafa nælt í leikmanninn.
„Frábærar fréttir fyrir Breiðablik að hafa fengið Davíð Örn Atlason til félagsins. Hann hefur verið einn besti bakvörður deildarinnar undanfarin ár og mun styrkja leikmannahópinn okkar bæði innan vallar sem utan. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn í hópinn“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks.
Davíð Örn á að baki 150 leiki í meistaraflokki og fimm leiki með yngri landsliðum Íslands. Hann hóf meistaraflokksferil sinn með KA árið 2011 en hann var um tíma á láni hjá Dalvík/Reyni.
Davíð hefur spilað með Víkingi Reykjavík síðan árið 2015. Hann var meðal annars bikarmeistari með liðinu árið 2019.