fbpx
Mánudagur 10.nóvember 2025
433Sport

Óli Stefán hættur með KA

Victor Pálsson
Miðvikudaginn 15. júlí 2020 11:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óli Stefán Flóventsson er hættur með KA í úrvalsdeild karla en þetta var staðfest nú rétt í þessu.

Óli hefur undanfarin tvö tímabil stýrt KA en æiðið gerði síðast jafntefli við Fjölni í efstu deild.

KA hafnaði í fimmta sæti á síðustu leiktíð og var árangur liðsins undir hans stjórn alls ekki slæmur.

Tilkynning KA:

Knattspyrnudeild KA og Óli Stefán Flóventsson hafa komist að samkomulagi um starfslok Óla hjá félaginu.

Gengi KA það sem af er tímabili er ekki ásættanlegt og telja báðir aðilar nauðsynlegt að gera þessar breytingar til að liðið nái sér á strik og sýni sinn rétta styrk. Liðið náði fimmta sæti undir stjórn Óla Stefáns í fyrra sem er besti árangur félagsins síðan félagið kom aftur upp í deild hinna bestu á Íslandi.

Stjórn Knattspyrnudeildar KA þakkar Óla Stefáni fyrir framlag sitt til félagsins og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni. Félagið mun nú þegar skoða sín mál varðandi þjálfun liðsins og mun ekki tjá sig nánar um málið að svo stöddu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Elvar segir þetta undirstrika stórt vandamál Íslands – „Leiðinlegt að tala alltaf um þetta“

Elvar segir þetta undirstrika stórt vandamál Íslands – „Leiðinlegt að tala alltaf um þetta“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Verðlaunaði sig með kínverskum mat

Verðlaunaði sig með kínverskum mat
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fyrrum stjarna Arsenal og Liverpool opnar sig – „Það var erfitt og ég vil ekki fara í gegnum það aftur“

Fyrrum stjarna Arsenal og Liverpool opnar sig – „Það var erfitt og ég vil ekki fara í gegnum það aftur“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Leikmaður Arsenal ekki að spila nóg til að komast í landsliðið

Leikmaður Arsenal ekki að spila nóg til að komast í landsliðið