fbpx
Sunnudagur 10.ágúst 2025
433Sport

Vændiskona segir gifta stjörnu hafa barnað sig – „Hann skammaðist sín“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 22. júní 2020 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katy Morgan vændiskona í Bretlandi fullyrðir að stjarna í ensku úrvalsdeildinni sé faðir barnsins sem hún eignaðist í mars á þessu ári.

Morgan hafði starfað sem vændiskona í mörg ár þegar þessi leikmaður í deildinni fór að bóka hana. Morgan segir að vinir hans í deildinni hafi mælt með henni.

Morgan segir að leikmaðurinn sem á barnið eigi konu  og sé giftur en Katy er 26 ára. Hún segir að leikmaðurinn hafi farið í DNA próf til að staðfesta að hann væri faðirinn

„Hann var í áfalli, hann trúði mér ekki,“ sagði Katy sem rukkaði 250 þúsund krónur fyrir kvöldið og leikmaðurinn var tíður gestur hjá henni.

„Hann var í áfalli, hann skammaðist sín fyrir að hafa barnað stelpu sem vinir hans höfðu verið með. Þeir gáfu honum númerið mitt og sögðu honum að hann myndi skemmta sér. Þeir sem voru að mæla með mér eru tveir enskir leikmenn. Ég hef verið með nokkrum leikmönnum í deildinni. Ég kann vel við þá.“

Katy er hætt að vinna sem vændiskona í dag og segir hún að leikmaðurinn sé byrjaður að sætta sig við hlutina eins og þeir eru.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Gera grín að Dananum sem hafði enga trú á Íslendingunum – Búinn að bóka ferð til Frakklands

Gera grín að Dananum sem hafði enga trú á Íslendingunum – Búinn að bóka ferð til Frakklands
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Kíkti óvænt í heimsókn í sumarfríinu – Sjáðu myndbandið

Kíkti óvænt í heimsókn í sumarfríinu – Sjáðu myndbandið