

FC Bayern er tilbúið að selja einn besta varnarmann í heimi, David Alaba í sumar ef rétt verð fæst fyrir hann.
Alaba verður samningslaus næsta sumar og Bayern vill ekki missa hann frítt, erfiðlega hefur gengið að semja við hann.
Alaba var lengi vel einn besti bakvörður í heimi en hefur spilað sem miðvörður í vetur og gert það vel.
Alaba ku kosta í kringum 45 milljónir punda en Telegraph segir að Liverpool, Manchester City, Manchester United og PSG skoði stöðuna.
PSG gæti stokkið til þar sem Thiago Silva er á förum en Jurgen Klopp gæti skoðað að fá Alaba inn með Virgil van Dijk í hjarta varnarinnar á Anfield.