

Það voru væntanlega ófáir Stjörnumenn glaðir í gær eftir leik liðsins við Fylki í efstu deild karla. Um var að ræða fyrsta leik beggja liða á þessu tímabili og var spilað á heimavelli Stjörnunnar í Garðabæ. Stjarnan byrjaði ansi illa og komst Fylkir yfir með marki frá Valdimari Þór Ingimundarsyni á fyrstu mínútu.
Markavélin Hilmar Árni Halldórsson jafnaði metin fyrir Stjörnuna á 26. mínútu en hann skoraði geggjað mark beint úr aukaspyrnu. Ólafur Ingi Skúlason fékk rautt spjald hjá Fylki á 88. mínútu en hann átti ljóta tæklingu á Alex Þór Hauksson og dómurinn réttur. Stjarnan náði svo að tryggja stigin þrjú í uppbótartíma er ungstirnið Ísak Andri Sigurgeirsson skoraði.
Bjarni Helgason blaðamaður Morgunblaðsins er lítt hrifin af því sem hann sá í Garðabænum í gær frá Fylki. „Fylkismenn skoruðu gott mark strax á fyrstu mínútu en síðan ekki söguna meir. Eftir að hafa komist yfir féll liðið vel til baka og hreinlega bauð Stjörnumönnum inn í leikinn sem þeir að sjálfsögðu þáðu. Það er erfitt að fara yfir leik Árbæinga í kvöld og ætla að finna jákvæða punkta,“ skrifar Bjarni á vef Morgunblaðsins en Bjarni ólst upp í Árbænum og er Fylkismaður.
Hann segir leikstí Fylkis ekki hafa verið merkilegan og ef vel eigi að ganga í sumar þurfi liðið að bæta sig mikið.
„Liðinu gekk afleitlega að halda boltanum innan liðsins. Miðjumenn liðsins voru eins mikið úr takt og það verður og Stjarnan hreinlega lék sér að því að finna sóknarmenn liðsins í svæðinu á milli miðju og varnar, allan leikinn. Þá komust kantmenn Stjörnunnar sí og æ í leikstöðuna einn á meðan kantmenn Árbæinga voru allt of seinir að skila sér til baka og hjálpa.“
„Pressan var léleg, uppspilið var lélegt, og þetta var í raun eins slakur „sparka og vona“ fótbolti og hann verður. Á meðan Geoffrey Castillion er ekki mættur í Árbæinn þýðir lítið að spila fótbolta eins og hann sé fremsti maður vallarins. Fylkismenn þurfa að gera miklu betur ef þeir ætla sér að vera í efri hluta deildarinnar í sumar.“