fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025
433Sport

Segir Blika samfélagið hafa farið á hliðina: „Getið rétt ímyndað ykkur hvað hann styrkir þá mikið“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 15. júní 2020 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristinn Steindórsson komst loksins á blað eftir langa markaþurrð í 3-0 sigri Breiðabliks á Gróttu í gær. Kristinn kom frá FH fyrir mót en hann var áður hjá Blikum og hélt svo út í atvinnumennsku.

Kristinn fann sig ekki hjá FH og vildi félagið ekki halda honum, Kristinn er mættur heim í Kópavoginn og markið sem hann skoraði í gær var glæsilegt. ,,Það er bara mjög góð tilfinning og ekki slæmt að byrja hana svona með sigri. Fyrsti leikurinn er alltaf erfiður og það er auðvelt að misstíga sig þó að þetta sé leikur sem við eigum að klára á pappír,“ sagði Kristinn eftir leik í gær.

Mikael Nikulásson þjálfari Njarðvíkur ræddi innkomu Kristins í Dr. Football í morgun. „Kiddi Steindórs er frábær í fótbolta og ef Óskar nær hausnum í lag, hann kom inn gegn Gróttu og skoraði. Það verður allt vitlaust, come on. Hann þarf að koma inn gegn Val og skora, allt Blika samfélagið fór á hliðina því hann kom og skoraði gegn Gróttu,“ sagði Mikael.

Mikael segir það gott fyrir sjálfstraust Kristins að skora í fyrsta leik og að innkoma hans geti breytt miklu fyrir Blika, finni hann gamla formið.

„Frábært fyrir hann og sjálfstraustið, skoraðu tvö gegn Val. Hann er fær til þess, hann var með takta. Ef hann nær sér á strik, ef hann nær að skora 8-10 mörk og spilar sinn leik. Þá getið þið rétt ímyndað ykkur hvað hann styrkir þá mikið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sást í fyrsta sinn í marga mánuði – Bíður niðurstöðu um hvort hann hafi fallið á lyfjaprófi

Sást í fyrsta sinn í marga mánuði – Bíður niðurstöðu um hvort hann hafi fallið á lyfjaprófi
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segir FH ekki hafa haft efni á því að kaupa Dag Fjeldsted – Snýr aftur til Breiðabliks

Segir FH ekki hafa haft efni á því að kaupa Dag Fjeldsted – Snýr aftur til Breiðabliks
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rooney talar um ömurleg kaup United í gegnum árin og nefnir þrjú nöfn

Rooney talar um ömurleg kaup United í gegnum árin og nefnir þrjú nöfn
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Slæmar fréttir af Ödegaard frá Noregi

Slæmar fréttir af Ödegaard frá Noregi
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Voru að taka upp myndband af sér í sleik þegar þetta gerðist – Voru agndofa yfir því hver var mættur á svæðið

Voru að taka upp myndband af sér í sleik þegar þetta gerðist – Voru agndofa yfir því hver var mættur á svæðið
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Dua Lipa lék tveimur skjöldum í Argentínu um helgina

Dua Lipa lék tveimur skjöldum í Argentínu um helgina
433Sport
Í gær

Fljótasti maður sögunnar grátbiður Ferdinand að tala við leikmenn United um þetta

Fljótasti maður sögunnar grátbiður Ferdinand að tala við leikmenn United um þetta
433Sport
Í gær

Kennir leikmönnum Liverpool um erfiða byrjun Florian Wirtz

Kennir leikmönnum Liverpool um erfiða byrjun Florian Wirtz