

Flestir spá því að Valur verði Íslandsmeistari í sumar en Pepsi Max-deild karla fer af stað á laugardag þegar KR heimsækir Val.
Valur var 23 stigum á eftir Íslandsmeisturum KR í fyrra. Heimir Guðjónsson tók við þjálfun Vals í vetur og virðist heimkoma hans hafa mikil áhrif á það hvernig lesið er í gengi Vals.
Heimir stendur ekki einn í þjálfun liðsins en hann er með öfluga aðstoðarmenn, aðstoðarþjálfari hans er Srdjan Tufegdzic sem áður stýrði KA og Grindavík.
„Þetta gerðist þannig að ég sat heima hjá mér eitt kvöldið og hann sendi mér frábært SMS. Ég var hrikalega ánægður með það og svaraði því að ég myndi hringja í hann daginn eftir sem ég gerði. Við spjölluðum saman og hann var með flottar hugmyndir um fótbolta. Við náðum vel saman,“ sagði Heimir í samtali við Hjörvar Hafliðason.

Túfa hafði síðustu ár verið aðalþjálfari og því kom á óvart að hann tæki skrefið „niður“ í aðstoðarþjálfarann. „Í framhaldinu ákváðum við að vinna saman og hingað til hefur hann staðið sig frábærlega. Hann er gríðarlega duglegur og vel lesinn. Hann þekkir leikinn vel og hefur mikla ástríðu fyrir leiknum. Hann hefur komið mjög sterkur inn í þetta.“