

Bologna hefur keypt Ara Sigurpálsson frá HK en félagið lánar hann til félagsins fram á haust. Ari getur því spilað með HK fram efitr sumri. Hjörvar Hafliðason segir frá á Twitter.
Ari fór á láni til Bologna síðasta vetur og heillaði forráðamenn félagsins. Ari er 17 ára gamall kantmaður.
Þorsteinn Örn Bernharðsson vinstri bakvörður frá KR er einnig að koma til HK á láni.
Þá er Fylkir að kaupa Arnór Gauti Jónsson frá Aftureldingu en hann er 18 ára gamall varnarmaður. Arnór æfði með Fylki í gær og mun ganga í raðir félagsins.
Arnór er 18 ára gamall og hefur spilað fyrir yngri landslið Íslands en þetta er mikil blóðtaka fyrir ungt lið Aftureldingar, rétt fyrir mót.
Kominn tími á eina frétt frá HK. Svona smá valdeflandi tíðindi í aðdraganda móts.
Skv. heimildum Dr. Football þá voru Bologna að ganga frá kaupum á Ara Sigurpálssyni og lána hann aftur til HK fram á haust. Hann verður klár í slaginn á sunnudag.— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) June 9, 2020