Mohammad bin Salman, krónprins, Saudí Arabíu er að ganga frá kaupum á Newcastle. Þetta fullyrða ensk blöð.
Mike Ashley hefur lengi viljað selja Newcastle og segja ensk blöð að hann sé klár í að losa sig við félagið fyrir 300 milljónir punda.
Ensk blöð segja í dag að félögin hafi gefið grænt ljós á kaupin og að þau verði staðfest innan tíðar.
Samningur vegna þess er á lokastigi en Bin Salman er sterk efnaður og gæti breytt Newcastle í stórveldi.
Ensk blöð segja að fyrsta verk Bin Salman verði að reka Steve Bruce úr starfi knattspyrnustjóra.
Sagt er að Mauricio Pochettino sé líklegastur að taka við en aðrir koma til greina.