Einn besti knattspyrnumaður allra tíma, Ronaldinho er nú í fangelsi í Paragvæ. Hann kom til landsins með falsað vegabréf.
Ronaldinho var árið 2018 á heimili sínu þegar lögreglan mætti, hann skuldaði skattinum um 300 milljónir og hafði ekki borgað. Tveir bílar og málverk voru tekinn af heimili hans, reynt var að ná upp í sektina.
Sektin hans við skattinn hækkaði svo og skömmu síðar voru 57 fasteignir í eigu Ronaldinho, teknar af honum. Ronaldinho var með vegabréf frá Spáni og Brasilíu, bæði voru tekinn af honum á dögunum. Hann var svo handtekinn í Paragvæ í síðustu viku, þar er hann sakaður um að hafa verið með falsað vegabréf og er að svara til saka þessa dagana.
Ronaldinho var handtekinn á dögunum og nú vilja yfirvöld þar setja hann í fangelsi, og gæti hann fengið hálfs árs dóm.
Lífið í fangelsinu er ekki jafn gott og Ronaldinho er vanur, fjölmiðlar í Brasilíu segja hann varla borða. Maturinn sé ógeðslegur, hann sé þó vinalegur við aðra fanga og geri lítið annað en að skrifa áritanir.
Þá vilja menn í fangelsinu setja upp knattspyrnumót þar sem Ronaldinho gæti sýnt listir sínar.