Yfirvöld í Austurríki hafa bannað áhorfendur á kappleikjum og þannig verður það þegar LASK tekur á móti Manchester United á fimmtudag, í Evrópudeildinni.
COVID-19 veiran er að breiðast hratt út um Evrópu og hefur fjöldi fólks látið lífið.
FC Bayern má ekki fá áhorfendur á leik sinn gegn Chelsea á morgun í Meistaradeild Evrópu. Ástæðan er COVID-19 veiran. Bayern vann fyrri leik liðanna 0-3 á Englandi.
Veiran er að hafa mikil áhrif um allan heim og er víða um Evrópu verið að banna fólki að mæta á leiki eða leikjum frestað.
Áhorfendur eru bannaðir á leikjum á Spáni næstu tvær vikurnar, vegna COVID-19 veirunnar sem nú herjar á heimsbyggðina.
Á Ítalíu hafa allir íþróttaviðburðir verið bannaðir fram í byrjun apríl og allt landið sett í sóttkví.
Á Spáni hefur veiran breiðst hratt út síðustu daga og fjöldi fólks látið lífið, forráðamenn þar taka enga sénsa.
❗️ERSTE INFO ZUM @EuropaLeague-SPIEL:
Der LASK gibt aus aktuellem Anlass bekannt, dass das für Donnerstag (18.55 Uhr) angesetzte Heimspiel gegen @ManUtd ohne Zuschauer stattfinden muss. Über Weiteres wird der Verein nach Veröffentlichung des einschlägigen Erlasses informieren. pic.twitter.com/yaYs4ovjUM— LASK (@LASK_Official) March 10, 2020