fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
433Sport

Segja Ólaf hafa verið í golfi á Flórída: „Þá verður smjattað á þessu í öllum kaffistofum Hafnarfjarðar og víðar“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 10. mars 2020 13:00

Ólafur Kristjánsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

,,Það vakti athygli mína í Lengjubikarnum um helgina að Ólafur Kristjánsson var ekki að stjórna FH liðinu. Maður var að renna yfir skýrslu, vinna heimavinnuna. Ég óttaðist það versta, að hann væri í sóttkví,“ sagði Hjörvar Hafliðason, í þætti sínum Dr Football í dag.

Ólafur stýrði FH ekki í sigri á Grindavík um helgina en ef marka má hlaðvarpsþáttinn vinsæla, var hann staddur á Flórída í golfi.

,,Ég hringdi nokkur símtöl og hann er bara í golfi. Maður veit hversu „pro“ Óli er og ég hélt að þetta væri algjort „no, no“ í hans bókum.“

Kristján Óli Sigurðsson, sérfræðingur þáttarins sagði að Ólafur hefði verið eftir á Flórída en þar var FH í æfingaferð á dögunum.

,,Hann er í golfi og það eru sex vikur í mót, allir sultuslakir. Framlengja æfingaferð til að vera í golfi, hann missir af leik. Ef FH geri jafntefli og tapi i fyrstu tveimur leikjunum, þá verður smjattað á þessu í öllum kaffistofum Hafnarfjarðar og víðar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rogers á óskalistanum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Gengur erfiðlega hjá Liverpool

Gengur erfiðlega hjá Liverpool
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

,,Ég er ekki vélmenni sem sýnir engar tilfinningar“

,,Ég er ekki vélmenni sem sýnir engar tilfinningar“
433Sport
Í gær

Diaz staðfestir viðræður við önnur félög – Liverpool þarf að taka ákvörðun

Diaz staðfestir viðræður við önnur félög – Liverpool þarf að taka ákvörðun
433Sport
Í gær

Gerðu ótrúleg mistök og 51 árs gömul kona fékk kallið í staðinn – ,,Ég er alltaf klár“

Gerðu ótrúleg mistök og 51 árs gömul kona fékk kallið í staðinn – ,,Ég er alltaf klár“
433Sport
Í gær

Besta deild kvenna: Vandræði Vals halda áfram

Besta deild kvenna: Vandræði Vals halda áfram
433Sport
Í gær

Einkunnir eftir frábæran fyrsta sigur Arnars með landsliðið – Elías Rafn bestur og setur alvöru pressu á þjálfarann

Einkunnir eftir frábæran fyrsta sigur Arnars með landsliðið – Elías Rafn bestur og setur alvöru pressu á þjálfarann