Birkir Bjarnason lék allan leikinn fyrir Brescia í kvöld sem mætti Sassuolo á Ítalíu.
Brescia er á hraðri leið niður í Serie B en liðið er með 16 stig í neðsta sæti deildarinnar, níu stigum frá öruggu sæti.
Birkir og félagar náðu sér alls ekki á strik í leiknum og vann Sassuolo sannfærandi 3-0 heimasigur.
Brescia hefur nú tapað þremur leikjum í röð og er útlitið ekki bjart.