Salih Heimir Porca, fyrrum leikmaður Vals og KR, var gestur í hlaðvarpsþættinum Draumaliðið í dag.
Draumaliðið er þáttur í umsjón Jóa Skúla og hefur náð miklum vinsældum. Þar fær hann góða gesti til að stilla upp liði með bestu samherjum ferilsins.
Salih Heimir spilaði með Val, Fylki, KR og Breiðablik hér heima en lagði skóna á hilluna árið 2002.
Hann ákvað að yfirgefa Val á sínum tíma fyrir Fylki en sú ákvörðun kom kannski aðeins þá.
Salih Heimir útskýrir þessa ákvörðun í þættinum en hann er með íslenskan ríkisborgararétt en kemur frá Bosníu.
,,Ég reyndi að útskýra fyrir Völsurum á þessum tíma, það sem þeir voru að bjóða mér fyrir að spila, sérstaklega þegar ég kem frá Selfossi, þá spilaði ég fyrir vinnuna og húsnæði. Peningarnir voru ekki miklir, ég fékk fína peninga á Selfossi,“ sagði Salih Heimir.
,,Þeir tjáðu mér á þessum tíma að ef ég myndi standa mig vel þá yrðum við að gera betri samning, gott og vel. Þarna voru menn sem grínuðust með það að ef ég væri ekki hjá þeim þá yrði ég bara sendur heim í stríð. Ég tók þessum tíma illa og ákvað að fara frá þeim.“
,,Fylkir var að safna mannskap og voru að koma upp, það voru sex strákar í U21 landsliðinu.“
,,Ég minni aftur á tímann á Selfossi. Þar var einn skúr! Það var aldrei svona neitt profit, menn voru í vinnunni og börðust fyrir því að komast á æfingar. Það var ekkert verið að bíða eftir einum eða tveimur. Þetta skilaði ekki miklu.“
,,Ég sagði við Magnús að þeir væru að gera kröfur til að verða stórir og sterkir og ég man mjög vel hvað hann sagði: ‘þegar hér verður risastórt hús með sundlaug, íþróttahúsi og aðstæður þá er hægt að kalla þetta stórklúbb en þeir áttu bara einn lítinn skúr.“